Konan sem Ágúst Ólafur áreitti stígur fram

Bára Huld Beck, blaða­maður á Kjarn­anum, er konan sem um ræðir. Bára lýsir upp­lifun sinni á tals­vert annan hátt en Ágúst. Upplifði þving­andi áreitni, varn­ar­leysi og nið­ur­læg­ingu.

Konan sem Ágúst Ólafur áreitti stígur fram
Stígur fram og lýsir áreitni Ágústs Ólafs Bára Hulda Beck, blaða­maður á Kjarn­anum, stígur fram og gerir veru­legar athuga­semdir við lýs­ingu Ágústs Ólafs Ágústs­sonar á sam­skiptum þeirra. Lýsing Ágústs sé skrum­skæl­ing á því sem raun­veru­lega gerð­ist. Mynd: Bára Huld Beck

Bára Huld Beck, blaða­maður á Kjarn­anum, hefur stigið fram og lýst því að hún sé konan sem Ágúst Ólafur Ágústs­son áreitti í byrjun síð­asta sum­ars. Ágústi var veitt áminn­ing af trún­að­ar­nefnd Sam­fylk­ing­ar­innar í síð­ustu viku vegna máls­ins og kaus hann að greina frá mál­inu á Facebook-síðu sinni í kjöl­farið. Bára segir að í þeirri yfir­lýs­ingu hafi hann dregið veru­lega úr mála­vöxtum, geri minna úr atvik­inu en hann hafi áður geng­ist við, og að hans lýs­ing sé ekki í sam­ræmi við hennar upp­lifun. Bára tekur einnig fram að það hafi ekki verið hennar vilji að málið yrði gert opin­bert en þá ákvörðun hafi Ágúst tekið úr hennar höndum með því að greina frá mál­inu á Facebook, og það ekki með réttum hætti.

Gekk yfir mörk Báru og niðurlægði hana

Bára segir í yfir­lýs­ingu sem hún birtir á Kjarn­anum að Ágúst Ólafur hafi ekki reynt að kyssa hana tví­vegis, eins og hann hélt fram í yfir­lýs­ingu sinni, heldur ítrekað. „Hann reyndi það aftur og aftur þrátt fyrir að ég hefði neitað honum og sett skýr mörk. Í hvert sinn sem ég neit­aði honum þá nið­ur­lægði hann mig með ýmsum hætti.“

„Í hvert sinn sem ég neit­aði honum þá nið­ur­lægði hann mig með ýmsum hætti“

Bára greinir enn­fremur frá því að Ágúst Ólafur hafi ekki yfir­gefið skrif­stofu Kjarnans, þangað sem þau fóru saman, þegar hún hafi beðið um það. Hún hafi að end­ingu fylgt honum út með þeim orðum að hún treysti sér ekki til að vera í sama rými og hann. „Hann lét samt ekki segj­ast og hélt þving­andi áreitni sinni áfram í lyft­unni á leið­inni út.“

Upplifði algjört varnarleysi

 Bára segir að Ágústi Ólafi hafi mátt vera full­ljóst að hún hefði ein­göngu áhuga á að eiga við hann áfram­hald­andi spjall eftir að þau yfir­gáfu bar­inn sem þau höfðu hist á. Hann hefði ekki átt að geta mis­skilið umræddar aðstæður. „Mín upp­lifun af þessum aðstæðum var algjört varn­ar­leysi. Það orsak­að­ist af því að ég varð fyrir ítrek­aðri áreitni af hálfu ann­ars ein­stak­lings. Það orsak­að­ist af því að ég var blaða­maður sem varð fyrir áreitni af hálfu þing­manns. Það orsak­að­ist af því að ég var starfs­maður fyr­ir­tækis sem varð fyrir áreitni af hálfu fyrr­ver­andi hlut­hafa í því fyr­ir­tæki. Allt þetta gerði það að verkum að ég hugs­aði að mögu­lega væri starf mitt í hættu. Að ég gæti ekki lengur unnið við það sem ég vinn við þar sem að þarna væri á ferð­inni áhrifa­maður í valda­stöðu.“

„Mín upp­lifun af þessum aðstæðum var algjört varn­ar­leysi“

Þá hafi Ágúst Ólafur nið­ur­lægt Báru ítrekað með ummælum um vits­muni hennar og útlit. Því hafi hún fundið fyrir kvíða og van­líðan eftir á og hafi sú líðan varða næstu mán­uði, og geri raunar enn að vissu leyti. Því hafi henni þótt sem hún þyrfti að skila þessum afleið­ingum til ger­and­ans, Ágústs. Hún hafi sent honum tölvu­póst í vik­unni eftir atvikið en hann hafi ekki svarað og ekki heldur þegar Bára hafi ítrekað þann póst. Loks níu dögum eftir atvikið hafi hann hins vegar hringt og beðist afsök­unar á hegðun sinni. 

„Seinna um sum­arið ákváðum við að hitt­ast í vitna við­ur­vist og ræða saman um það sem átt hafði sér stað. Ég útskýrði þar fyrir honum líðan mína og áhrifin sem þetta hefði haft á mig. Hann rengdi ekki frá­sögn mína af atvik­inu með neinum hætti og baðst aftur afsök­un­ar. Þar varð mér einnig ljóst að hann virt­ist ekki ætla að segja neinum frá þessu atviki.

Mér fannst það ekki í lagi að ég væri ein með vit­neskju um þessa hegðun hans og þar með ábyrgð vegna henn­ar. Ég gat ekki hugsað mér að annar ein­stak­lingur myndi síðar lenda í við­líka atviki með hon­um. Því væri eðli­legt að skilja vit­neskj­una um atvikið eftir ann­ars stað­ar. Sér­stak­lega í ljósi þess að um mann í vald­stöðu var að ræða.

„Þetta var ekki bara mis­heppnuð við­reynsla, heldur ítrekuð áreitni og nið­ur­læg­ing“

Ég hafði því sam­band við Loga Ein­ars­son, for­mann Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og greindi honum frá mála­vöxt­um. Hann benti mér á að senda inn erindi til trún­að­ar­nefndar Sam­fylk­ing­ar­innar en hún hafði þá nýlega hafið störf. Ég gerði það þann 19. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.“

Braut gegn fjölda greina í siðareglum Samfylkingarinnar

Bára greinir frá því að trún­að­ar­nefndin hafi skilað nið­ur­stöðu sinni 27. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Sú nið­ur­staða hafi verið skýr og afger­andi: „Ágúst Ólafur Ágústs­son sæti áminn­ingu fyrir að hafa brotið gegn Báru Huld Beck með eft­ir­far­andi hætti: Með því að reyna end­ur­tekið og í óþökk þol­anda að kyssa hana á starfs­stöð Kjarn­ans 20. júní 2018 og varðar það við reglu 3.1.3. Með því að nið­ur­lægja og auð­mýkja þol­anda meðal ann­ars með nið­ur­lægj­andi og móðg­andi athuga­semdum um útlit hennar og vits­muni þegar til­raunir hans báru ekki árangur og varðar það við reglu 3.1.2. Þá telur nefndin að Ágúst Ólafur hafi með fram­komu sinni gegn þol­anda snið­gengið stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar gegn ein­elti og áreitni og bakað félögum sínum í Sam­fylk­ing­unni tjón með því að virða ekki 1., 4. og 11. gr. siða­reglna flokks­ins. Ákvörð­unin styðst við verk­lags­reglur 6.1.3 um mót­töku og með­ferð umkvart­ana á sviði ein­eltis og áreitn­i.“

Yfirlýsing Ágústar ekki í samræmi við málavexti

Bára segir að hún hygg­ist ekki taka nokkra afstöðu til þess hvort eða hvernig Ágúst Ólafur geri sinnt stöfum sínum að ferli þessu loknu. Fyrir henni hafi ein­ungis vakað að fá við­ur­kenn­ingu frá ger­andi á því sem átti stað. Þá hafi hún ekki ætlað sér að gera málið opin­bert. „Það er ábyrgð­ar­hlutur að senda frá sér yfir­lýs­ingu um mál sem þessi, eins og Ágúst Ólafur gerði. En ef slík yfir­lýs­ing er skrum­skæld á ein­hvern hátt er hætt við að röng og jafn­vel var­huga­verð skila­boð séu send út í sam­fé­lag­ið. Yfir­lýs­ing Ágústar Ólafs er ekki í sam­ræmi við mála­vexti. Hún gerir mun minna úr því sem átti sér stað en til­efni var til. Þetta var ekki bara mis­heppnuð við­reynsla, heldur ítrekuð áreitni og nið­ur­læg­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár