Sigmundur Davíð segist særður vegna orða Lilju um „ofbeldismenn“: „Lilja er vinur minn“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son seg­ist hafa farið mörgum fögrum orðum um Lilju Alfreðs­dóttur og ekki haft um hana ljót orð. Á upp­töku má heyra hann segja Lilju spila á karl­menn „eins og kven­fólk kann,“ eftir að hún er kölluð „hel­vítis tík“.

Sigmundur Davíð segist særður vegna orða Lilju um „ofbeldismenn“: „Lilja er vinur minn“
Segist hafa farið fögrum orðum um Lilju Sig­mundur Davíð seg­ist hafa farið mörgum fögrum orðum um Lilju Alfreðs­dóttur á Klaustri Bar. Mynd: Pressphotos

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segir að ekk­ert sem sagt hafi verið um hann í póli­tík hafi sært hann eins mikið og þau orð Lilju Alfreðs­dóttur að hann væri ofbeld­is­maður.

Lilja, sem kölluð var „hel­vítis tík“, sem hægt væri að „ríða“, í sam­tali Mið­flokks­mann­anna Sig­mundar Davíðs, Gunnars Braga Sveins­sonar og Bergþórs Ólasonar, þar sem Sig­mundur sagði að henni væri ekki treystandi og að hún „spil­aði á karl­menn eins og kona kann“, vegna þess að hún hafði ekki sam­band við Mið­flokks­menn til að „tengj­ast við þá“, kom fram í við­tali við Kast­ljósið í gær­kvöldi og sagð­ist upp­lifa þá sem ofbeld­is­menn, sem ættu ekki að hafa dag­skrár­vald.

„Lilja er vinur minn,“ segir Sig­mundur Davíð í dag, „og það sem hefur reynst mér erf­ið­ast við þau mál sem hafa verið til umræðu að und­an­förnu var að særa vini mína. Ég skil því vel reiði Lilju.“

Þá seg­ist Sig­mundur hafa særst mikið við þessa lýs­ingu Lilju. „Ég hef verið kall­aður fleiri ljótum nöfnum en ég hef tölu á. Ég minn­ist þess hins vegar ekki að hafa áður verið kall­aður ofbeld­is­maður. Ekkert sem um mig hefur verið sagt í póli­tík hefur sært mig eins mikið.“

Hann segir sér þykja erf­ið­ast við Klaustur-málið hafi verið að hafa sært hana. „Ég skil því vel reiði Lilju.“

Segir samhengið hafa riðlast

Þetta kemur fram í færslu sem Sig­mundur Davíð birtir á Facebook-síðu sinni. Þar heldur Sig­mundur því fram að heild­ar­mynd og sam­hengi umræð­unnar sem átti sér stað á Klaustri Bar hafi riðl­ast sökum þess að bútar hafi verið klipptir úr upp­tök­unni og birtir. Hann hafi farið mörgum fögrum orðum um Lilju, kallað hana frá­bæra og þeir sem réðu málum í Fram­sókn­ar­flokknum létu hana ekki njóta sann­mælis. Rétt er að geta þess að við þetta kann­ast blaða­menn sem hlustað hafa á upp­tök­urnar ekki, en þó er ekki allt sam­talið grein­an­legt. Vel heyr­ist hins vegar þegar Gunnar Bragi Sveins­son hrópar: „Hjólum í hel­vítis tík­ina!“

Sig­mundur segir líka að honum þyki leitt að sjá Lilju halda því fram að hann hafi ekki haft sam­band við hana eftir að greint var frá því hvernig talað var um hana. „Ég sendi henni skeyti með afsök­un­ar­beiðni til að reyna að koma á sam­skiptum. Þegar ekki barst svar við því bað ég aðra mann­eskju að láta hana vita hvernig mér liði vegna þess sem gerst hefði og að mig lang­aði að hitta hana. Hún afþakk­aði það boð að sinni.“

Segist ekki hafa notað ljót orð

Sig­mundur seg­ist aðeins hafa sagt að Lilju væri ekki treystandi póli­tískt og hann gæti sjálfum sér kenntu um að hafa skipað hana að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi með því fengið líf­línu. Hann hafi ekki haft ljót orð um hana og sagði það miður að hann hefði ekki atyrt menn fyrir að nota ljót orð um Lilju. Fyrir það skammist hann sín.

Rétt er að benda á að Sig­mundur tók undir atyrði sessu­nauta sinna í garð Lilju. Þá sagði hann meðal ann­ars, eftir að þeir Gunnar Bragi Sveins­son og Bergþór Ólason höfðu lýst því yfir að hægt væri að „ríða“ henni: „Ég er mjög ánægður að heyra að þið séuð komnir að sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu með þetta.“ Einnig sagði Sig­mundur að Lilja not­aði kyn­þokk­ann og „hún spilar á karl­menn eins og kven­fólk kann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár