Kynslóðarsaga blómabarna - Um Katrínarsögu eftir Halldóru Thoroddsen
Heillandi og upplýsandi aldarfarslýsing en óþarflega litlaus aðalpersóna. Bókin er hreinlega of stutt, hefði getað orðið töluvert betri væri hún lengri og ekki væri farið jafn hratt yfir sögu.
Heillandi aldafarslýsingKatrínarsaga er upplýsandi lýsing á hippatímabilinu en bókin líður fyrir að vera hreinlega of stutt.
Katrínarsaga hefst á formála sem minnir á ljóðrænt söguljóð um tildrög blómabarnanna, eins og samið af vísindamanni að greina þræði tímans. Svo er okkur varpað í heim Katrínar og vina hennar og dveljum langdvölum með þeim á hippaárunum – en komum síðar við á uppaárum níunda áratugarins og bóluárunum fyrir hrun. Það er dregin upp ágætis mynd af flokkadráttum þessara tíma, súmmarar, marxistar og hippar koma við sögu en renna þó á endanum saman í einn blómapott.
Prósinn er listilega skrifaður ef undan eru skilin sum samtöl sem eru einkennilega stirð, dálítið eins og persónurnar séu að fjalla um kenningar sem þær skilja illa, og eru því eins og þær séu að þylja páfagaukslærdóm upp úr bók, frekar en að þær hafi raunverulega tileinkað sér þessar hugmyndir. Sem var …
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Athugasemdir
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir