Litla Moskva átti meira erindi við samtímann en mig grunaði

Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Grím­ur Há­kon­ar­son fjall­ar um sögu sósí­al­ista í Nes­kaup­stað í nýrri heim­ilda­mynd sinni, Litlu Moskvu. Sósí­al­ist­ar voru þar með hrein­an meiri­hluta í 52 ár. Verk­efn­ið veitti hon­um inn­blást­ur sem nýtt­ist hon­um við gerð nýrr­ar mynd­ar sem kem­ur frá hon­um á næsta ári.

Litla Moskva átti meira erindi við samtímann en mig grunaði
Gvendur Stalín Guðmundur Sigurjónsson, eða Gvendur Stalín, var gallharður stalínisti þar til yfir lauk, en Grímur hóf tökur við Litlu Moskvu með honum.

„Það er svolítið áhugavert að hugsa til þess að þegar ég byrjaði að vinna að þessari mynd fyrir nokkrum árum þá virkaði sósíalisminn eins og stefna sem tilheyrði fortíðinni. Fólk hafði ekki lengur trú á verkalýðnum sem einhverju afli breytinga. Það var bara menntaða fólkið úr háskólanum sem var afl breytinga. En svo þegar myndin kemur út í dag þá er sósíalisminn orðinn miklu meira trend,“ segir Grímur Hákonarson, leikstjóri heimildamyndarinnar Litlu Moskvu, sem var frumsýnd í Bíó Paradís þann 16. nóvember.

Myndin fjallar um Neskaupstað sem hefur fengið viðurnefnið Litla Moskva í ljósi þess hve sterka stöðu róttækir vinstrimenn úr röðum sósíalista og síðar Alþýðubandalagsins, höfðu þar lengi vel. Þannig fór sá flokkur sem var lengst til vinstri á ás íslenskra stjórmála með hreinan meirihluta í bæjarfélaginu frá árinu 1946 til ársins 1998, þegar nokkur sveitarfélög á Austfjörðum runnu saman í sveitarfélagið Fjarðabyggð.

Við tökurGrímur Hákonarson, leikstjóri Litlu …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Samþjöppun auðs veldur pólitískum óstöðugleika
2
Innlent

Sam­þjöpp­un auðs veld­ur póli­tísk­um óstöð­ug­leika

Gylfi Magnús­son, pró­fess­or í hag­fræði við Há­skóla Ís­lands, seg­ir að ekki séu mjög sterk­ar vís­bend­ing­ar um mis­skipt­ingu auðs á Ís­landi, hér sé eigna­hlut­fall með jafn­asta móti. Hins veg­ar séu töl­ur um slíkt frá öðr­um lönd­um, lít­ill hóp­ur eigi hluta­bréf í Banda­ríkj­un­um sem hafi áhrif á fjár­mála­mark­aði. Sam­þjöpp­un auðs og mis­skipt­ing hans geti vald­ið póli­tísku ójafn­vægi í sam­fé­lög­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
5
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár