Litla Moskva átti meira erindi við samtímann en mig grunaði

Kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Grímur Hákon­ar­son fjallar um sögu sós­í­alista í Nes­kaup­stað í nýrri heim­ilda­mynd sinni, Litlu Moskvu. Sós­í­alistar voru þar með hreinan meiri­hluta í 52 ár. Verk­efnið veitti honum inn­blástur sem nýtt­ist honum við gerð nýrrar myndar sem kemur frá honum á næsta ári.

Litla Moskva átti meira erindi við samtímann en mig grunaði
Gvendur Stalín Guð­mundur Sig­ur­jóns­son, eða Gvendur Stalín, var gall­harður stalínisti þar til yfir lauk, en Grímur hóf tökur við Litlu Moskvu með honum.

„Það er svo­lítið áhuga­vert að hugsa til þess að þegar ég byrj­aði að vinna að þess­ari mynd fyrir nokkrum árum þá virk­aði sós­í­al­ism­inn eins og stefna sem til­heyrði for­tíð­inni. Fólk hafði ekki lengur trú á verka­lýðnum sem ein­hverju afli breyt­inga. Það var bara mennt­aða fólkið úr háskól­anum sem var afl breyt­inga. En svo þegar myndin kemur út í dag þá er sós­í­al­ism­inn orð­inn miklu meira trend,“ segir Grímur Hákon­ar­son, leik­stjóri heim­ilda­mynd­ar­innar Litlu Moskvu, sem var frum­sýnd í Bíó Paradís þann 16. nóv­em­ber.

Myndin fjallar um Nes­kaup­stað sem hefur fengið við­ur­nefnið Litla Moskva í ljósi þess hve sterka stöðu rót­tækir vinstri­menn úr röðum sós­í­alista og síðar Alþýðu­banda­lags­ins, höfðu þar lengi vel. Þannig fór sá flokkur sem var lengst til vinstri á ás íslenskra stjór­mála með hreinan meiri­hluta í bæj­ar­fé­lag­inu frá árinu 1946 til árs­ins 1998, þegar nokkur sveit­ar­fé­lög á Aust­fjörðum runnu saman í sveit­ar­fé­lagið Fjarða­byggð.

Við …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár