Kaupendur fá íbúðir ekki afhentar frá Sturlu

Kaup­endur að íbúðum í Helga­fells­hverfi í Mos­fellsbæ hafa beðið afhend­ingar í marga mán­uði. Fast­eigna­fé­lag Sturlu Sig­hvats­sonar á íbúð­irnar og er það í alvar­legum van­skilum.

Kaupendur fá íbúðir ekki afhentar frá Sturlu
Sturla Sig­hvats­son Þorri fast­eigna félags Sturlu, Lauga­vegar ehf., hefur verið settur á nauð­ung­ar­upp­boð und­an­farna mán­uði. Mynd: RÚV

Hópur fólks hefur ekki fengið afhentar íbúðir við Gerplu­stræti 2–4 í Helga­fells­hverfi í Mos­fellsbæ sem félag Sturlu Sig­hvats­sonar fjár­festis hefur selt þeim. Síðast stóð til að afhenda þær í júlí, en fast­eigna­fé­lagið er nú í alvar­legum van­skilum.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur kaup­endum nú verið lofað afhend­ingu í des­em­ber. Illa hafi gengið að ná í Sturlu og lítið hafi verið gert til að klára íbúð­irnar að und­an­förnu að því er þeim sýn­ist. Óttast sumir að greiðslur þeirra sem fóru fram við und­ir­ritun kaup­samn­ings muni glat­ast ef fast­eigna­fé­lagið lendir í vand­ræðum, en félagið tók tæpan millj­arð í lán vegna við­skipt­anna.

Ekki náð­ist í Sturlu við vinnslu frétt­ar­innar. Að sögn Sveins Eylands Garð­ars­sonar, fast­eigna­sala hjá Landmark, sem sér um söl­una, eru sam­skipti Land­marks við kaup­endur góð og stefnt að afhend­ingu snemma í des­em­ber.

Stundin hefur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár