Ritari Sjálfstæðisflokks varar við vofu Karl Marx í verkalýðsfélögum

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir varar við hug­mynda­fræði sós­í­alista í aðdrag­anda kjara­samn­inga í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Kröfur hávær­ustu verka­lýðs­fé­lag­anna séu óraun­hæfar, óskyn­sam­legar, ábyrgð­ar­lausar og búi til fals­vonir.

Ritari Sjálfstæðisflokks varar við vofu Karl Marx í verkalýðsfélögum
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Mynd: xd.is

„Skynsömu fólki má vera ljóst að kröfur hávær­ustu verka­lýðs­fé­lag­anna eru ekki bara óraun­hæfar og óskyn­sam­legar, heldur með öllu ábyrgð­ar­lausar og aðeins til þess fallnar að búa til fals­vonir.“ Þetta segir Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, þing­maður og rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag.

Í grein­inni segir Áslaug að hug­mynda­fræði sós­í­al­isma sem heyrst hafi í aðdrag­anda kjara­samn­inga bygg­ist á og sæki nær­ingu í sundr­ungu. „Henni er ætlað að reka fleyg, ekki aðeins milli atvinnu­rek­enda og launa­fólks heldur einnig milli stétta. Sagan kennir okkur hvaða afleið­ingar það hefur.“

„Árið er 2018 en vofa Karls Marx lifnar við í frösum íslenskra for­ystu­manna verka­lýðs­fé­laga og fylgi­sveina þeirra.“

Segir hún nauð­syn­legt fyrir launa­fólk, ekki síður en eig­endur fyr­ir­tækja, að spyrna við fót­unum. „Árið er 2018 en vofa Karls Marx lifnar við í frösum íslenskra for­ystu­manna verka­lýðs­fé­laga og fylgi­sveina þeirra,“ skrifar Áslaug. „Þeir sem eldri eru þekkja afleið­ingar sós­í­al­ism­ans í Sov­ét­ríkj­unum, Austur-Þýska­landi og Kína og við sem yngri erum höfum séð hvernig almenn­ingur í Venes­ú­ela hefur greitt dýru verði fyrir enn eina til­raun­ina í nafni sós­í­al­ism­ans. Landi sem fyrir örfáum árum var eitt auð­ug­asta ríki í Suður-Ameríku en er nú orðið efna­hags­leg auðn. Dæmin eru fleiri en rúm­ast í stuttum pistli sem þessum, en nið­ur­staðan er alltaf sú sama. Hvar sem sós­í­al­ismi hefur skotið rótum eru afleið­ing­arnar skelfi­legar fyrir almenn­ing. Það er engin ástæða til að ætla að nið­ur­staðan yrði önnur hér á landi.“

Loks skrifar Áslaug að einn af þeim frösum sem hafi heyrst á und­an­förnum miss­erum sé að atvinnu­rek­endur séu óvinir launa­manna. Ekkert geti verið fjær sanni og hvor­ugur geti lifað án hinna. „Það er ekki fyrir hvern sem er að gagn­rýna eða efast um hag­fræði­þekk­ingu þeirra sem nú fara fyrir stærstu verka­lýðs­fé­lögum lands­ins. Sá hinn sami má eiga von á því að vera sam­tvinn­aður við illt auð­vald, sak­aður um að vinna gegn launa­fólki og fleira í þeim dúr,“ skrifar Áslaug.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár