Icelandair kaupir WOW air og tæp 80% flugferða til og frá Íslandi verða á sömu hendi

Ef yf­ir­taka Icelanda­ir á WOW air verð­ur sam­þykkt mun val­kost­um neyt­enda fækka. Sam­keppnis­eft­ir­lit­ið á eft­ir að fara yf­ir mál­ið.

Icelandair kaupir WOW air og tæp 80% flugferða til og frá Íslandi verða á sömu hendi
Icelandair Nýtt, sameinað félag mun hafa yfirburðarstöðu á flugmarkaði á Íslandi. Mynd: Icelandair

Ef Icelandair kaupir WOW air, eins og tilkynnt hefur verið, munu hátt í 80 prósent flugferða til og frá landsins verða á hendi sama aðila. 

Tilkynnt var um fyrirhuguð kaup Icelandair rétt í þessu. Skúli Mogensen, eigandi WOW air, fær 5,4% hlut í Icelandair í sölunni. Samkvæmt markaðsvirði Icelandair jafngildir þetta um 2,2 milljörðum króna, en WOW air tapaði 2,3 milljörðum króna í fyrra.

Í júní 2018 hafði WOW air 32 prósent markaðshlutdeild í flugferðum til og frá landinu, en Icelandair 44,7 prósent. Umsvifamest erlendra flugfélaga var Wizz air með 3,8 prósent flugferða og Easyjet með 2,3 prósent. Markaðshlutdeild íslensku þessara tveggja íslensku flugfélaga hefur verið stöðug í kringum tæp 80 prósent, en WOW air hefur hækkað flugið undanfarin ár og tekið af hlutdeild Icelandair. Þannig hefur hlutdeild Icelandair fallið úr tæpum 70 prósentum árið 2013 í tæp 45 prósent.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá félögunum verða þau áfram rekin undir sömu vörumerkjum. Þá kemur fram í tilkynningunni að markaðshlutdeild þeirra yfir Atlantshafið sé 3,8%. Það segir hins vegar ekki alla söguna um yfirgnæfandi markaðsstöðu félaganna í samgöngum til og frá Íslandi.

Vefsíðan Túristi.is greindi frá því í fyrra að í engu öðru Evrópulandi væri hlutdeild innlendra flugfélaga eins há og hér á landi, en nú verður sú hlutdeild á vegum sama aðila.

„Það eru mik­il tæki­færi til hagræðing­ar en fé­lög­in verða áfram rek­in á eig­in for­send­um und­ir eig­in vörumerkj­um og flugrekstr­ar­leyf­um. Íslensk ferðaþjón­usta er grunnstoð í ís­lensku  hag­kerfi og það er mik­il­vægt að flug­sam­göng­ur til og frá land­inu séu í traust­um skorðum,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningunni.

Lending í máli WOW airSkúli Mogensen lýsir yfir ánægju með þá lendingu sem náðst hefur í málefnum félagsins.

„Nú tek­ur nýr kafli við“

WOW air hafði, samkvæmt yfirlýsingum félagasins um miðjan september, náð að fjármagna sig með 6,5 milljarða króna skuldabréfaútboði með 9 prósent vaxtaálagi.

Skúli Mogensen, eigandi WOW air, kveðst í yfirlýsingu í dag vera stoltur. „Ég er mjög stolt­ur af þeim ár­angri og þeirri upp­bygg­ingu sem við hjá WOW air höf­um náð á und­an­förn­um árum og er jafn­framt  þakk­lát­ur fyr­ir þær frá­bæru viðtök­ur sem við höf­um fengið frá fyrsta degi. Við höf­um byggt upp öfl­ugt teymi sem hef­ur náð eft­ir­tekta­verðum ár­angri og verið brautryðjandi í lággjalda­flugi yfir Norður-Atlants­hafið. Nú tek­ur nýr kafli við þar sem WOW air fær tæki­færi til að vaxa og dafna með öfl­ug­an bak­hjarl eins og Icelanda­ir Group sem mun styrkja stoðir fé­lags­ins enn frek­ar í alþjóðlegri sam­keppni.“

Beðið er hluthafafundar Icelandair, áreiðanleikakönnunar og svo samþykkis Samkeppniseftirlitsins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
2
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Náttúrubarnið í Sænautaseli
4
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.
„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
5
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár