Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú

Sem konungur, páfi og Jesú, eða sem handhafi friðarverðlauna Nóbels. Með aðstoð gervigreindar hefur Donald Trump brugðið sér í öll þessi hlutverk og fleiri, á myndum sem hann birtir af sjálfum sér á samfélagsmiðlum. 

Nýtt tímabil er runnið upp þar sem forseti Bandaríkjanna nýtir gervigreind og nútímatækni í áróðursskyni. Á samfélagsmiðlum hans og Hvíta hússins birtist forsetinn ekki aðeins sem hetja, samhliða gervigreindarmyndum og myndböndum sem eru til þess fallin að niðurlægja andstæðingana, heldur er efni dreift sem inniheldur villandi upplýsingar eða uppspuna frá rótum. 

Stöðug og milliliðalaus skilaboð 

Frá því að Donald Trump hóf kosningabaráttuna fyrir endurkjöri sem forseti hefur hann nýtt gervigreind í pólitískum áróðri. „Hann er að nota mjög þekktar aðferðir í áróðursfræðum og ímyndarsköpun,“ segir Valgeir Magnússon, sérfræðingur í auglýsinga- og markaðsmálum. „Munurinn er að tæknin gerir honum kleift að gera þetta stöðugt, án milliliða og ná beint til fólks.“

Mörgum var brugðið í febrúar 2025 …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    If one person is King, Pope and Jesus the question arises:"who is scum"!?
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Núverandi forseti BNA er einhver mesti furðufugl stjórnmála allra tíma. En hvert hefur verið hlutverk hans fram að þessu?
    Hann er flestum ólíklegri að vera nefndur við friðarboðskap því í raun hefur hann verið fyrst og fremst í hlutverki eins stórtækasta vopnasala sögunnar sem greitt hefir götu hergagnaframleiðenda. Þeir vilja eðlilega framleiða sem mest af þessari varhugaverða varningi í stmórnlausri græðgi sinni sem sérstök ástæða er til að sýna fyllstu tortryggni.
    Og að bregða sér i hlutverk Krists, páfa eða einhvers annars er eins og hvert annað stórmennskubrjálæði manns sem telur sig vita allt miklu betur en allir aðrir.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár