Beint flug til Kína hefst

Kín­verska sendi­ráðið hefur til­kynnt um fyrsta beina flugið á milli Kína og Íslands.

Air China
Air China Fyrsta flugið verður frá Keflavík til Beijing 26. októ­ber næst­kom­andi. Mynd: Danny Yu

Kín­verska sendi­ráðið á Íslandi hefur til­kynnt um fyrsta beina flug á milli Íslands og Kína.

Air China sér um flugið en það fyrsta verður 26. októ­ber frá Kefla­vík­ur­flug­velli til Beijing.

„Hvílíkur árangur í tví­hliða sam­skiptum!“ segir í færslu sendi­ráðs­ins á Facebook. „Þetta mun gjör­breyta ferða­lögum á milli Kína og Íslands sem og á milli Asíu og Evrópu!“

He Rulong, sendi­herra Kína á Íslandi, hefur lengi talað fyrir beinu flugi á milli land­anna, en í júní heim­sóttu full­trúar Air China Ísland til að skoða mögu­leik­ann.

Miðasala hefur verið opnuð og mögu­legt er að bóka miða í gegnum vef­síðu Air China.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Vissulega góðar fréttir. Samskipti við Kína munu bara aukast á næstunni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár