Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar

Fyrir réttum 400 árum keyptu nið­ur­lenskir kaup­menn sér eyju. Þau kaup áttu eftir að draga dilk á eftir sér en ávöxtun Nið­ur­lend­ing­anna má heita býsna góð!

Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
Þessi mynd á að sýna New York 1626 en hætt er við að virkið, sem Nið­ur­lend­ingar reistu, hafi þá ekki verið orðið svo mynd­ar­legt sem þarna má sjá. Mynd: New York 1626

Þann 5. nóv­em­ber 1626 sett­ist nið­ur­lenski korn­kaup­mað­ur­inn Pieter Schagen niður á skrif­stofu sinni í Amster­dam og skrif­aði bréf. Schagen var rétt tæp­lega fimm­tugur og ekki við eina fjöl­ina felldur. Auk kaup­mennsk­unnar var hann tón­list­ar­maður góður og all­vin­sælt tón­skáld. Hann sat í stjórn Nið­ur­lenska Vest­ur­ind­ía­fé­lags­ins sem ann­að­ist verslun og sigl­ingar vestur um haf þar sem mörg Evr­ópu­ríki voru enn að þreifa fyrir sér í nýja heim­inum, svo­kall­aða. Og Schagen var líka í rík­is­ráði Nið­ur­landa og bréfið sem hann skrif­aði var einmitt til félaga hans í því ráði.

Hann ávarp­aði félaga sína einkar kurt­eis­lega:

„Hooghe Moghende Herren ...“

Það mætti þýða sem:

„Háu og vold­ugu herrar.“

Og svo hélt Schagen áfram:

„Í gær kom hingað skipið Skjald­ar­merki Amster­dam og hafði það siglt hinn 23. sept­em­ber frá Nýja Nið­ur­landi við ósa Mári­tí­us­ar­fljóts. Skip­verjar segja að fólki okkar þar vegni vel og lifi í friði. Konur …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Síðasta málsgreinin fjallar um sannleikann í málinu - að hugmyndir um eignarhald voru mjög ólíkar og að í raun var enginn menningarlegur samsvörun við kaup. Það tengist náið fornum siðum eins og gjafagjöf, heimanmund og svo framvegis (til dæmis í Íslendingasögum) þar sem það er ekki bara einföld og fullkomin eignarflutningur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár