Mynd: Úr vör

Samfélagsgarður í sjónum

Á Húsavík vinnur ung kona frá Þýska­landi, Gyde Rudolph, hörðum höndum að því að setja á fót bláan sam­fé­lags­garð.

Gyde Rudolph er ungur Þjóð­verji sem kom til Íslands fyrir tæpum tveimur árum, sett­ist að á Húsavík og er strax farin að láta til sín taka í sam­fé­lags­málum fyrir norðan. Hún vinnur nú hörðum höndum að því að setja á fót bláan sam­fé­lags­garð, eitt­hvað sem aldrei hefur verið gert hér á landi, en hefur fengið gríð­ar­lega góð við­brögð um allt land.

Gyde er með meistara­gráðu frá háskól­anum í Gauta­borg og sú gráða leiddi hana til Íslands. Hún fékk tæki­færi til að fara í starfs­nám erlendis og hafði alltaf haft mik­inn áhuga á að fara til Íslands og úr varð að hún fór í tvenns konar starfs­nám hér á landi. Fyrra starfs­námið var í Reykja­vík hjá Sjáv­ar­kla­s­anum og seinna starfs­námið var á Húsavík hjá Rann­sókna­setri Háskóla Íslands.

Fljótandi kennslustofa

„Verk­efnið snýst um að koma á fót svoköll­uðum bláum sam­fé­lags­garði í höfn­inni hér á Húsavík. Þetta er eitt­hvað sem …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár