Myrkur í ágúst 2 — Jörðin verður til

Sól­myrk­vinn er yfir­vof­andi, skuggi Tungls­ins mun gleypa Jörðina og í þess­ari grein segir frá því hvernig Jörðin varð til

Myrkur í ágúst 2 — Jörðin verður til
„Kletta­plánetur“ að verða til umhverfis nýkvikn­aða sól. Í raun­inni hefur skýið umhverfis sól­ina áreið­an­lega ekki verið svona þykkt ennþá, þegar plánet­urnar voru komnar svona langt á þró­un­ar­braut­inni, en þetta er mynd­rænna svona!

Í gær varð sólin til.

Í þess­ari grein hér.

Hið helj­ar­stóra ryk­ský sem hafði sveimað um óra­víddir geims­ins í millj­arða ára var allt í einu orðið að sól.

„Allt í einu“ er ekki orða­lag út í blá­inn. 

Því það gerð­ist á leift­ur­hraða á mæli­kvarða alheims­ins.

Gleymdi ég að nefna það í gær?

Frá því skýið byrj­aði að snú­ast og síðan falla saman og þangað til sólin „kvikn­aði“ liðu lík­lega ekki nema um það bil 50 millj­ónir ára.

Andartak í sögu alheims­ins, nei, bara vottur af and­ar­taki.

Sólin er allsráðandi

En þarna var hún komin og hún skein svo skært þar sem miðja skýs­ins hafði áður verið, búin að soga það allt inn í sig.

Allt eða næstum allt.

99,8 pró­sent af ský­inu stóra var nú fólgið í sól­inni.

Eftir voru 0,2 pró­sent.

Og hvar var sú agn­ar­ögn?

Jú, það lít­il­ræði af efni var farið að sveima hring eftir hring um sól­ina, mis­langt frá henni.

Nógu nærri til að hald­ast áfram í nágrenni hennar, nógu hrað­skreitt til að falla ekki í loga hennar.

Og þetta örlitla efni, þessi 0,2 pró­sent, fór að drag­ast saman.

Aðeins einni til tíu milljón árum eftir að sólin varð til hafði gasið í ytri sveitum hins nýja sól­kerfis dreg­ist saman í nokkrar ansi vold­ugar gaskúlur.

Við köllum þær Júpíter, Satúrnus, Úranus og Neptúnus.

Í nær­sveitum sól­ar­innar var hins vegar harð­ara efni á sveimi og það var lengur að hnoð­ast saman í hnetti.

Aðeins lengur.

Það tók svona 10 til 30 millj­ónir ára en þá voru 20–30 mis­stórar frum­plánetur úr grjóti farnar að sveima kringum sól­ina og svo heilmargt af loft­steinum, smá­st­irnum og þvíum­líku dóti.

Of margar plánetur

Okkar Jörð var meðal stærstu frum­plánet­anna, samt ívið minni en núna, en margar hinna bara á stærð við tunglið okkar.

Nema hvað þær voru of margar.

Jafnvel í geimnum er plássið ekki enda­laust.

Jörðin var orðin til og sveim­aði ein um hið nýja sól­kerfi kringum hina nýju sól.

Engir sól­myrkvar vörp­uðu skugga á hið nýja hitagló­andi yfir­borð því það var ekk­ert tungl.

Hún var alveg ein.

En bíðum samt við, þarna nálg­ast önnur pláneta.

Og nálg­ast æ meir og meir. 

Hvernig endar þetta?

Það fáiði að lesa á morgun þegar tunglið verður til.

Jafnvel í geimnum er plássið ekki enda­laust
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár