Öflugur skjálfti við Nesjavallavirkjun

Jarð­skjálfti sem fannst um klukkan hálf­eitt í nótt var sá stærsti á Nesja­völlum í 28 ár.

Nesjavallavirkjun
Nesja­valla­virkjun Skjálft­inn greind­ist skammt frá. Mynd: Jón Trausti

Öflugur jarð­skjálfti fannst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og víðar á suð­vest­ur­horni lands­ins 36 mín­útum eftir mið­nætti. Samkvæmt fyrstu mæl­ingum var hann 4,1 að stærð og á 7 kíló­metra dýpi. 

Stað­setn­ing skjálft­ans sam­kvæmt sjálf­virkum mæl­ingum er örskammt frá Nesja­valla­virkjun, norður af fjall­inu Hengli og austan við Dyra­fjöll, skammt suð­vestur af Þing­valla­vatni. Hann var því miðja vegu milli Reykja­víkur og Selfoss. 

„Þetta er stærsti skjálft­inn á Nesja­völlum síðan 1998 þegar mæld­ist skjálfti af stærð 4,6 á svip­uðum slóðum,“ segir til­kynn­ing frá nátt­úru­vár­vakt Veð­ur­stofu Íslands.

Stað­setn­ing sjálft­ansÍ sjálf­virkri mæl­ingu var sjálft­inn skammt suð­vestur af Þing­valla­vatni.
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár