Bandarísk stjórnvöld boða alþjóðlega herferð gegn vinstri öfgastjórnmálum, sem þeir kalla hryðjuverkastefnu.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kallaði eftir alþjóðlegri samvinnu í baráttunni gegn „nýrri bylgju þessarar gömlu meinsemdar“ sem hann sagði koma fram undir yfirskini „jafnréttis, réttlætis og frelsis“.
Fundur í kvöld
Í upphafsávarpi á ráðherrafundi um „endurkomu stjórnmálahryðjuverka“ sagði Rubio að „hryðjuverk lengst til vinstri“ hefðu orðið „blindur blettur“ eftir að athyglin beindist að öfgum íslamista í kjölfar árásanna 11. september 2001. Hann sagði vinstri hryðjuverk vera „einstaka illsku“.
„Jafnvel í dag er litið á þá hugmynd að hryðjuverk lengst til vinstri gætu verið alvarleg ógn sem hugaróra hægrimanna eða, það sem verra er, sem hættulegt fasískt samsæri,“ sagði hann.
Rubio vísaði til fjölgunar árása vinstrimanna í Evrópu og Bandaríkjunum frá árinu 2016 og kallaði eftir aukinni samvinnu í baráttunni gegn hugmyndafræði sem hann lýsti sem „eitraðri gremju sem er hulin yfirskini jafnréttis …
Sérðu villu? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






























Það væri ágætt að gá upplýsingar um hverjir það eru, vegna þess að ég efast um að Alþingi eða eitthvað stjórnvald hafi sent fulltrúa á hana fyrir Íslands hönd...?