Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“

Utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna segir „hryðju­verkafólk“ undir yfirskini „jafnréttis, réttlætis og frelsis“ vera „einstaka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd forsetans, segir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í samfélaginu. „Þau eru öll afmynduð á einhvern hátt í útliti, klæða­burði og háttalagi,“ segir hann.

Marco Rubio
Marco Rubio Heldur opn­unará­varp í kvöld á við­burði um „end­ur­komu póli­tískra hryðju­verka“. Mynd: AFP

Bandarísk stjórn­völd boða alþjóð­lega herferð gegn vinstri öfga­stjórnmálum, sem þeir kalla hryðjuverka­stefnu.

Marco Rubio, utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, kallaði eftir alþjóðlegri samvinnu í barátt­unni gegn „nýrri bylgju þessarar gömlu meinsemdar“ sem hann sagði koma fram undir yfirskini „jafnréttis, réttlætis og frelsis“. 

Fundur í kvöld

Í upphafs­ávarpi á ráðherra­fundi um „endurkomu stjórnmála­hryðjuverka“ sagði Rubio að „hryðju­verk lengst til vinstri“ hefðu orðið „blindur blettur“ eftir að athyglin beindist að öfgum íslamista í kjölfar árásanna 11. september 2001. Hann sagði vinstri hryðju­verk vera „einstaka illsku“.

„Jafnvel í dag er litið á þá hugmynd að hryðju­verk lengst til vinstri gætu verið alvarleg ógn sem hugaróra hægri­manna eða, það sem verra er, sem hættulegt fasískt samsæri,“ sagði hann.

Rubio vísaði til fjölgunar árása vinstri­manna í Evrópu og Banda­ríkjunum frá árinu 2016 og kallaði eftir aukinni samvinnu í barátt­unni gegn hugmynda­fræði sem hann lýsti sem „eitraðri gremju sem er hulin yfirskini jafnréttis …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Saevar Helgason skrifaði
    Það er sagt að einhverjir frá Íslandi hafi sótt þessa ráðstefnu...?
    Það væri ágætt að gá upplýsingar um hverjir það eru, vegna þess að ég efast um að Alþingi eða eitthvað stjórnvald hafi sent fulltrúa á hana fyrir Íslands hönd...?
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hver þarf hryðjuverkamenn sem hefur stjórnvöld eins og Bandaríkin hafa núna?
    8
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Er sjötti áratugur síðustu aldar kominn á „repeat” hjá þessum skúnkum ?
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið undanfarið ár