Arðgreiðsla skilar félagi forseta 50 milljónum

Eign­ar­halds­fé­lag Höllu Tóm­as­dóttur for­seta og Jóns Björns­sonar, for­stjóra Veritas, fær 50 millj­ónir í arð frá fjár­fest­inga­fé­lag­inu Var sem þau eiga fjórð­ungs­hlut í. Halla seg­ist ekki koma að rekstri félags­ins.

Halla Tómasdóttir
Halla Tóm­as­dóttir Forseti Íslands á hlut í félagi á móti for­stjóra Veritas. Mynd: Golli

Fjár­fest­inga­fé­lagið Var ehf. hagn­að­ist um 134 millj­ónir króna í fyrra og mun greiða 200 millj­ónir í arð til eig­enda sinna.

Þetta kemur fram í nýjum árs­reikn­ingi félags­ins vegna árs­ins 2025. Félagið er í jafnri eigu fjög­urra eign­ar­halds­fé­laga, Dalsár­óss, Granats, Vita og Sunnu­ness, en það síð­ast­nefnda er í 50% eigu Höllu Tóm­as­dóttur, for­seta Íslands, á móti Jóni Björns­syni, for­stjóra Veritas.

Var hagn­að­ist um 1.560 millj­ónir árið 2024 eftir sölu á þremur aug­lýs­inga­fyr­ir­tækjum, BBI, Dengsa og Bill­bo­ard. Greiddur var út 800 milljón króna arður fyrir það ár en þar af komu 200 millj­ónir í hlut félags Höllu og Jóns.

Árið 2025 koma hins vegar 50 millj­ónir króna af 200 millj­óna arð­greiðslu í hlut Sunnu­ness. Eigendur hinna eign­ar­halds­fé­lag­anna bak við Var eru Jón Felix Sig­urðs­son í gegnum Dalsárós, Guð­mundur Auðunn Auð­uns­son og Guðríður María Jóhann­es­dóttir í gegnum Granat, og Bjarni Þórður Bjarna­son og fleiri í gegnum Vita fjár­fest­inga­fé­lag, sam­kvæmt nýj­ustu …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Asmundur Richardsson skrifaði
    Stóð í þeirri meiningu að æðstu ráðamenn og konur ættu að aftengja öll tengsl sín og sinna nánustu við fyrirtæki í rekstri til að fyrirbyggja mögulega hagsmunaárekatra. Fréttin kemur á óvart og byggir ekki undir traust til forsetans hjá mér.
    4
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    þetta var nú það eina sem okkur vantaði í glansheiminn
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár