Móðir og jeppabílstjóri í Garðabænum ósammála um atvik á bílastæði

Ung móðir segir að óþol­in­móður bíl­stjóri á jeppa hafi ekið á hana á bíla­stæði í Garða­bænum. Maðurinn hefur aðra sögu að segja og full­yrðir að konan hafi bakkað lík­ama sínum á jepp­ann hans.

Móðir og jeppabílstjóri í Garðabænum ósammála um atvik á bílastæði
Bíl­stjóri Bílnúmer manns­ins var nefnt í færslu kon­unar. Hann hefur verið nafn­greindur á Facebook. Myndin teng­ist ekki efni frétt­ar­innar beint. Mynd: Shutterstock

Frásögn af atviki hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum, en þar sakar kona mið­aldra karl­mann um að hafa keyrt vilj­andi á sig á bíla­stæði í Garðabæ. Konan birti bíl­númer manns­ins á Facebook. 

Hún skrifar: „Afsakið hvað ég var svona lengi að taka tveggja ára son minn út úr bílnum á meðan ég var með 9 mán­aða son minn í fang­inu. Auðvitað var ósann­gjarnt af mér að láta þig bíða eftir stæð­inu við hlið­ina a mér, og skilj­an­lega keyrðir þú utan í mig þegar ég ætl­aði að loka hurð­inni. Svo minnt­irðu mig á að við ættum nú að fara var­lega í umferð­inni, því ég leit ekki aftur fyrir mig til að sjá þig og stóra mik­il­væga jepp­ann þinn. Þér til sam­lætis, þá fannstu nú annan merki­legan karl­mann og þið gátuð hlegið að mér saman, þegar ég stóð og öskr­aði á þig fyrir að hafa keyrt á mig.“

Viðbrögð net­verja eru harka­leg og hefur mað­ur­inn ítrekað verið nafn­greindur í athuga­semdum auk þess sem heim­il­is­fang hans er til­greint. Þá er hann kall­aður „myglu­blettur“ og ýmsum öðrum gíf­ur­yrðum. Konan hefur til­kynnt lög­reglu um atvikið.

Bílstjórinn segir atburðarásina allt aðra

Þegar Stundin hafði sam­band við mann­inn sagð­ist hann ekki hafa lesið atviks­lýs­ingu kon­unnar, enda ætti hann ekki Facebook-aðgang. Sjálfur útskýrir hann atburða­r­ásína á þá leið að konan hafi bakkað lík­ama sínum á jepp­ann hans, að gerð­inni Mitsu­bishi Outlander, þegar hann var kom­inn inn að bíla­stæð­inu við hlið hennar. 

„Svo bakkar hún á bíl­inn og
heldur að ég hafi keyrt á sig“

„Það er stúlka þarna og ég sé að hún er að fara í aft­ur­sætið á bílnum, svo ég stoppa af því að ég ætl­aði að leggja. Hún er að stússa þarna með  börn í aft­ur­sæt­inu, ég sá að hún var þarna með börn. Það tekur alveg smá tíma, nokkrar mín­útur. Ég bíð þarna, ég gerði ráð fyrir því að hún hafi séð mig. Svo snýr hún sér eitt­hvað við og ég er kom­inn þarna hálfur inn í stæðið, svo bakkar hún á bíl­inn og heldur að ég hafi keyrt á sig.“

Viðbrögð hennar hafi verið mjög hörð og hún æpt á hann á miðju bíla­stæð­inu á meðan hann reyndi að stilla til friðar. „Ég reyndi bara að biðja hana for­láts og biðja hana að róa sig niður.“ Jeppa­bíl­stjór­inn segir að maður sem hann þekkti ekki hafi komið aðvíf­andi og lagt hönd á öxl hans. Að öðru leyti hafi þeir engin sam­skipti átt. Konan hafi hins vegar beint reiði sinni að þeim manni sem hafi svo látið sig hverfa. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár