Er gervisæta góð fyrir meltinguna?

Ný rann­sókn sýnir að gervi­sætu­efni geta haft eitr­un­ar­á­hrif á bakt­er­íur sem lifa í melt­ing­ar­vegi. Getur haft nei­kvæð áhrif á mann­fólk.

Er gervisæta góð fyrir meltinguna?
Hefur áhrif á bakt­er­íur Gervi­sæta hefur áhrif á bakt­er­íur sem geta lifað í þarma­flóru fólks. Mynd: Shutterstock

Gervi­sæta eða sætu­efni hefur lengi verið undir smá­sjánni. Til að hljóta þann heiður að vera leyfi­leg í augum mat­væla­eft­ir­lita þurfa efni að ganga í gegnum ótal margar til­raunir sem sér­stak­lega eru hann­aðar til að sýna fram á hvort efnið hafi áhrif á fólk eða frumur þess.

Þar sem sætu­efnin asp­artam, súkralósi, sakkarín, neótam, advantam og aesúlfam-k hafa öll verið leyfð hlýtur neysla þeirra að vera örugg. Vissu­lega eru þessi efni ekki eitruð fyrir frum­urnar okkar í því magni sem þau finn­ast í mark­aðs­settum mat­vælum, en það er ekki endi­lega þar með sagt að þau hafi engin áhrif.

Ímynd sætuefnanna misgóð

Fjöl­margar rann­sóknir hafa farið fram þar sem verið er að skoða hvort t.d. lang­tíma­notkun sætu­efna geti til dæmis ýtt undir myndun krabba­meina, örvi bólgur eða leiði til hjarta- og æða­sjúk­dóma. Engin afger­andi nið­ur­staða hefur feng­ist í þessi mál. Hvorki er hægt að sverta nafn sætu­efn­anna með „krabba­meins­vald­andi“ stimpl­inum, né hreinsa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár