Blóðfruma verður að eggmyndandi frumu

Gæti haft í för með sér lausnir til handa fólki sem á í erf­ið­leikum með að eign­ast börn. Vekur engu að síður sið­ferði­legar spurn­ingar.

Blóðfruma verður að eggmyndandi frumu
Ný leið til mynd­unar egg­frumu Japönskum vís­inda­mönnum hefur tek­ist að mynda for­vera egg­frumu, úr blóð­frumu konu. Mynd: Shutterstock

Að eign­ast barn reyn­ist ekki öllum auð­velt og er þar margt sem getur spilað inn í. Um eitt af hverjum tíu pörum glímir við frjó­sem­is­vanda. Það hefur einnig færst í auk­ana að konur velji að fresta barn­eignum lengur en áður hefur verið auk þess sem hinsegin pör þurfa gjarnan að leita óhefð­bund­inna leiða til að verða for­eldrar.

Jap­anskir vís­inda­menn komust á dög­unum nær því að finna nýjar lausnir fyrir þá sem ekki geta eign­ast börn með auð­veldum hætti. Þeim tókst fyrstum manna að mynda for­vera egg­frumu úr blóð­frumu konu.

Frjósemi dvínar með hækkandi aldri

Ólíkt körlum, sem geta myndað sáð­frumur út ævina, fæð­ast konur með fyr­ir­fram ákveð­inn fjölda egg­frumna sem fækkar eftir því sem líður á. Við fæð­ingu eru eggin um milljón tals­ins en við kyn­þroska hefur þeim fækkað tölu­vert og telja í kringum 300.000. Þrátt fyrir að þessi tala hljómi kannski ekki há á þessi fjöldi að duga …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár