Bjarni valdi Illuga í enn eina stjórnina

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra til­nefndi Illuga Gunn­ars­son sem for­mann stjórnar Orkubús Vest­fjarða. Gegnir hann nú þremur stöðum sem ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks hafa valið hann í eftir að hann hætti í stjórn­málum. Tekjur hans af þessu, auk bið­launa, hafa verið að með­al­tali rúm 1,1 milljón á mán­uði.

Bjarni valdi Illuga í enn eina stjórnina
Illugi Gunn­ars­son og Bjarni Bene­dikts­son Ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa valið Illuga Gunn­ars­son í þrjú opin­ber verk­efni síðan Illugi hætti á þingi í árs­byrjun 2017. Mynd: Skjáskot úr fréttatíma RÚV

Illugi Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins til margra ára, var til­nefndur af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í stjórn Orkubús Vest­fjarða ohf. í maí. Sem for­maður stjórn­ar­innar fær hann 252 þús­und krónur á mán­uði í laun. Einn stjórn­ar­fundur er í hverjum mán­uði og greiðir félagið fyrir flug Illuga frá Reykja­vík til Ísa­fjarðar á fund­ina auk uppi­halds.

Þetta kemur fram í svari Orkubús Vest­fjarða ohf. við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. Illugi var kjör­inn í stjórn á aðal­fundi félags­ins 15. maí. Tók hann við af Viðari Helga­syni, sér­fræð­ingi hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, sem gegnt hafði starfi for­manns stjórnar frá 2011. Laun for­manns voru hækkuð úr 240 þús­und krónum á sama aðal­fundi og þegar Illugi var skip­aður í stjórn.

Hefur Illugi fengið að minnsta kosti 24 millj­ónir króna fyrir þrjár stöður á vegum hins opin­bera sem sam­flokks­menn hans hafa skipað hann í, auk bið­launa, frá því hann hætti á Alþingi og sem ráð­herra í jan­úar 2017. Tekjur hans af þessum þremur verk­efnum og bið­laun­unum hafa þannig numið rúmri 1,1 milljón króna að með­al­tali á mán­uði.

Illugi Gunn­ars­son til­kynnti um brott­hvarf sitt úr stjórn­málum um ári eftir að Orku Energy-málið svo­kall­aða kom upp þar sem hann var stað­inn að því að hafa selt Hauki Harð­ar­syni, stjórn­ar­for­manni Orku Energy og fyrrum vinnu­veit­anda sínum, íbúð sína vegna fjár­hags­örð­ug­leika og fengið að leigja hana af honum. Hags­muna­tengslin lágu í þagn­ar­gildi þegar Illugi und­ir­rit­aði sam­starfs­samn­ing við kín­verska ríkið í maí 2015 og tryggði Orku Energy stöðu „fram­kvæmd­ar­að­ila“ fyrir hönd íslenska rík­is­ins, en venju­lega fá aðeins rík­is­fyr­ir­tæki eða rík­is­stofn­anir slíka stöðu í samn­ingum milli ein­stakra ríkja.

Á meðal þeirra sem gagn­rýndu Illuga harð­lega var Páll Magn­ús­son, núver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis. Sagði hann að fyrir lægju „sterkar vís­bend­ingar um brot mennta­mála­ráð­herra á hegn­ing­ar­laga­á­kvæðum um mútu­þægni“ og að póli­tísk spill­ing á Íslandi hefði „sjaldan birst jafn hrein og krist­al­tær“. 

Valinn í þrjár stöður til viðbótar við biðlaun

Stundin hefur áður greint frá því að Illugi fékk greiddar 8,3 millj­ónir króna fyrir setu í nefnd um end­ur­skoðun ramma pen­inga­stefnu. Var hann skip­aður í nefnd­ina af Bjarna, sem þá var for­sæt­is­ráð­herra. Illugi og Bjarni hafa verið banda­menn í Sjálf­stæð­is­flokknum und­an­farna ára­tugi. 

Þá var hann skip­aður af flokks­bróður sínum Jóni Gunn­ars­syni, þáver­andi sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, sem for­maður stjórnar Byggða­stofn­unar. Hafði hann fengið greiddar tæpar 3,6 millj­ónir króna frá apríl 2017 til júníloka 2018 fyrir setu í stjórn­inni.

Loks átti hann rétt á bið­launum til sex mán­aða, bæði sem þing­maður og ráð­herra, alls 10.957.638 kr. Fékk hann þau greidd að fullu, þrátt fyrir að hafa gegnt öðrum störfum á sama tíma­bili, sem að öllu jöfnu hefðu átt að leiða til skerð­ingar bið­launa, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá fjár­mála­skrif­stofu Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár