Þingmaður segir flugumenn bera út óhróður um sig

„Ég sagði óvart SS-sveitin,“ segir Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem er ósáttur við að fjallað hafi verið um ummæli hans á Alþingi. Hann full­yrðir að „flugu­menn“ beri út óhróður um hann.

Þingmaður segir flugumenn bera út óhróður um sig
Ásmundur Frið­riks­son Hélt til­finn­inga­þrungna ræðu um það sem hann nefnir dreif­ingu óhróð­urs um hann í kjöl­far umfjöll­unar um orð hans um SS-sveit.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hélt til­fin­inga­þrungna ræðu á þingi í dag þar sem hann sak­aði fjöl­miðla um að ganga erinda Pírata og sagði þá hafa flugu­menn á sínum snærum við að bera út óhróður um hann.

Tilefni ræðu Ásmundar var að greint var frá því í fjöl­miðlum í gær að hann hefði sagt á Alþingi að „SS-menn“ að sunnan kæmu í veg fyrir fram­farir á Vest­fjörðum, vegna þess að úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála hefði synjað lax­eldi í Pat­reks­firði og Tálkna­firði um starfs­leyfi á grund­velli umhverf­is­sjón­ar­miða.

Ásmundur sagð­ist í dag hafa rugl­ast. Hann hefði skrifað á minn­is­blað sitt „SS“, sem skamm­stöfun fyrir „sér­fræð­ingar að sunnan“, en óvart lesið það upp. „Ég sagði óvart SS-sveitin. Sér­fræð­ing­arnir að sunnan. Það fannst mér mjög miður. Og hafi ég ætlað að vera með eitt­hvað gátt­læti í huga á þess­ari stundu, sem var mjög alvar­leg, að þá var það ekki svo. En það stóð ekki á við­brögð­unum. Pírat­arnir stóðu hér upp og fóru að bendla mig við stormsveitir þriðja rík­is­ins. Og það er eins og þegar þeir tala um mig í þessum sal, að það er eins og bóndi blístri á hlíð­inn smala­hund, þegar Stundin og Kjarninn, í þessu til­felli, og oft­ast Rík­is­út­varpið, taka upp eftir þeim það sem ég mis­mælti mig hér í gær. Og þeir fara að bera mig saman við þessa morð­óðu hunda frá Þýska­landi.“

Þess ber að geta að full­yrð­ing Ásmdunar um að Stundin hafi fjallað um ummæli hans í gær, er röng.

Ræða ÁsmundarÁsmundur Frið­riks­son gagn­rýndi opin­bera umfjöllun um orð hans á Alþingi í dag.

Dró orð sín til baka

Kjarninn fjall­aði hins vegar um ummæli Ásmundar í frétt í gær,  sem og gagn­rýni píratans Smára McCarthy á lík­ingu við sér­sveitir nas­ista, sem gengu undir nafn­inu SS-sveitir.  Smári steig upp í pontu og brást við orðum Ásmundar á þingi í gær: „Ég kem aðal­lega til að gera athuga­semd við það að hv. þing­maður skuli líkja stofn­unum sem eru mik­il­vægar sam­fé­lag­inu, og eru vissu­lega sumar með höf­uð­stöðvar í Reykja­vík, við stormsveitir nas­ista sem stóðu að miklum morðum og ódæðum í seinni heims­styrj­öld. Mér finnst það ósmekk­legt þar sem annað er laga­laus skríll sem drap fólk og hitt eru stofn­anir sem eru mik­il­vægar sam­fé­lag­inu og voru stofn­aðar til að fram­fylgja lögum sem voru sett í þessum sal. Mér þykir full ástæða til að biðja hv. þing­mann um að draga þau til­teknu orð til baka svo að við getum rætt málið á eðli­legum grund­velli.“

Svo fór í gær að Ásmundur dró orð sín til baka og árétt­aði: „Það er hár­rétt hjá hátt­virtum þing­manni að það var algjör­lega ósæmi­legt að minn­ast á þetta á þennan hátt. Það var heldur ekki meint þannig. Ég var að tala um sér­fræð­ing­ana að sunnan og skamm­staf­aði það þannig. Ég vil taka skýrt fram að ég ætl­aði ekki að höggva í sama knérunn og átti alls ekki von á því að sú mynd yrði dregin upp af umræðu minni, ég ætla ekki einu sinni að nefna það á nafn af því það er ekki minn háttur.“

„Svo hafa þeir flugumenn úti í bæ“

Ásmundur full­yrti í ræðu sinni í dag að ekki væri fjallað um að pírati hefði sagt Piu Kjærs­gaard, for­seta danska þings­ins, hafa „sömu skoð­anir og Adolf Hitler“.

„Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur.“

Hann full­yrti auk þess að flugu­menn væru á ferli sem dreifðu óhróðri um hann. „Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur. Sömu aðilar tala um þjóð­höfð­ingja vest­rænna ríkja, sem kosnir eru af fólk­inu, og líkja þeim við Mus­sol­ini og þennan títt­nefnda Adolf Hitler. Og svo hafa þeir alls konar flugu­menn úti í bæ sem bera ófögn­uð­inn út um mann. Þetta er fólkið sem stendur upp í þessum sal, trekk í trekk, ber upp á mann lygar, hefur sagt að ég væri þjófur, hafi stolið pen­ingum af þing­inu, og þau þurfa ekki að standa fyrir neinu. Og svo hafa þeir flugu­menn úti í bæ, sem senda ósómann yfir mann, sem taka ósómann úr fjöl­miðl­unum og senda yfir mann . Á fés­bók­inni og víðar. Mér finnst bara að þetta sé óboð­legt fyrir þingið að það skuli vera talað svona um þing­menn, að þeir séu SS-menn.“

Ásmundur hefur sætt gagn­rýni vegna rangra full­yrð­inga hans um kostnað við mót­töku hæl­is­leit­enda. Einnig hefur hann lagt til að bak­grunnur allra múslima á Íslandi verði kann­aður með til­liti til þess að hætta sé á að þeir séu hryðju­verka­menn. Þá hefur Ásmundur verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum eftir að í ljós kom að hann hefði inn­heimt 4,6 millj­ónir króna í akst­urs­greiðslur frá Alþingi, vegna akst­urs sem sam­kvæmt Félagi íslenskra bif­reiða­eig­enda kost­aði hann að raun­virði aðeins rúmar tvær millj­ónir króna.

Ásakaði formann velferðarnefndar

Ásmundur hefur áður gagn­rýnt fjöl­miðla á Alþingi og sagði meðal ann­ars í ræðu­stól á þingi að hann hefði „ekki miklar mætur“ á Stund­inni. Áður hafði Stundin fjall­aði um að hann hefði svarað fjölda­pósti vegna boð­unar fundar um barna­vernd­ar­mál í vel­ferð­ar­nefnd Alþingis, sem hann á sæti í, með þeim orðum að hann myndi sleppa fund­inum, með þeirri skýr­ingu að málið sem um ræddi hefði verið til umfjöll­unar í Stund­inni: „Ég verð ekki á þessum fundi og ég les ekki Stundina, en er það fjöl­mið­ill sem fólk tekur mark á aðrir en Píratar. Bkv Ási Friðriks.“ Þá sak­aði hann for­mann nefnd­ar­innar, Halldóru Mogensen, þing­mann pírata, um að „míg­leka“ upp­lýs­ingum til Stund­ar­innar, vegna birt­ingar tölvu­póst­ins, en nokkur fjöldi fólks fékk við­kom­andi tölvu­póst fyrir utan Halldóru, sem hafn­aði alfarið ásök­unum Ásmundar.

Fyr­ir­vari um hags­muni: Fjöl­mið­ill­inn Stundin, sem flytur þessa frétt, kemur fyrir í orðum þing­manns­ins sem fjallað er um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár