Friðarverðlaunin til baráttufólks gegn kynferðisofbeldi í stríði

Denis Mukwege og Nadia Murad hljóti frið­ar­verð­laun Nóbels árið 2018.

Friðarverðlaunin til baráttufólks gegn kynferðisofbeldi í stríði
Verð­launuð fyrir bar­áttu gegn kyn­ferð­is­of­beldi Frið­ar­verð­launin í ár eru veitt til að vekja athygli á kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem stríðs­glæpum. Mynd: Reals, Tucker

Tilkynnt var í morgun í Osló að frið­ar­verð­laun Nóbels fengju í ár þau Denis Mukwege og Nadia Murad. Bæði hafa þau barist gegn nauðg­unum og kyn­ferð­is­of­beldi í stríði.

Denis Mukwege er læknir frá Kongó sem stofn­aði Panzi-sjúkra­húsið í Bukavu í austur Kongó árið 2008. Þar hafa þús­undir kvenna hlotið aðhlynn­ingu eftir nauðg­anir víga­manna á svæð­inu.

Nadia Murad, er Jasídi frá Írak. Murad var tekin af liðs­mönnum hryðju­verka­sam­tak­anna ISIS sem héldu henni fang­inni, beittu hana kyn­ferð­is­legu ofbeldi og pynt­ingum um þriggja mán­aða skeið árið 2014. Murad tókst að flýja úr haldi hryðju­verka­mann­ana, til Þýska­lands, þar sem hún hefur leitt bar­áttu gegn man­sali, kyn­ferð­is­legu ofbeldi og nauðg­unum í stríði, auk þess sem hún hefur talað máli þjóðar sinnar, Jasída.

Í rök­stuðn­ingi val­nefndar frið­ar­verð­laun­anna sagði að þau Murad og Mukwege fengju verð­launin til að vekja athygli á kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem stríðs­glæpum.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár