Plakötum af Hauki dreift í Aþenu

Enn er ekki vitað um afdrif Hauks Hilm­ars­sonar, sjö mán­uðum eftir meint and­lát hans í sprengju­árás tyrk­neska hers­ins.

Plakötum af Hauki dreift í Aþenu

Plakötum með mynd af Hauki Hilm­ars­syni, sem tal­inn er hafa fallið þegar Tyrkir réð­ust inn í Afrin-hérað í Sýrlandi fyrr á þessu ári, hefur verið dreift í Aþenu, höf­uð­borg Grikk­lands. Er Haukur kall­aður písl­ar­vottur Afrin og plakötin merkt helstu aðilum sem berj­ast gegn inn­rás tyrk­neska hers­ins í hér­aðið. Myndum af plakötunum hefur verið dreift á Twitter.

Enn er ekk­ert vitað um afdrif Hauks rúmum sjö mán­uðum eftir að fregnir bár­ust um meint and­lát hans í sprengju­árás tyrk­neska hers­ins. Haukur var sagður hafa farið til Sýrlands í gegnum tengsl við grískan anar­kista­hóp til að berj­ast með Kúrdum gegn ISIS. Íslensk yfir­völd hafa verið gagn­rýnd fyrir lin­kind og með­virkni gagn­vart Tyrk­lands­stjórn, en Tyrkland er banda­lags­ríki Íslands innan NATO auk þess sem Rétt­lætis- og fram­fara­flokkur Recep Tayyip Erdoğan Tyrk­lands­for­seta er syst­ur­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Evr­ópu­sam­tökum íhalds- og umbóta­sinna.

Plakat með mynd af HaukiHaukur er sagður písl­ar­vottur í Afrin á plakati í höf­uð­borg Grikk­lands.

Fjöldi þjóð­þekktra Íslend­inga sendi Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra opið bréf þann 23. apríl síð­ast­lið­inn, kall­aði eftir metn­að­ar­fyllri aðgerðum og gerði athuga­semdir við að svo virt­ist sem rann­sókn utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á hvarfi Hauks hefði verið fram­kvæmd „með sem minnstri fyr­ir­höfn og með það fyrir augum að styggja ekki tyrk­nesk yfir­völd – þau sömu og talin eru hafa sært, hand­samað eða jafn­vel myrt Hauk“. Katrín hefur því svarað að málið sé í algjörum for­gangi hjá utan­rík­is­þjón­ust­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár