Forsetinn segir fjölda nauðgana skýrast af fegurð kvenna

For­seti Fil­ipps­eyja seg­ir fjölda fal­legra kvenna fara sam­an við fjölda nauðg­ana.

Forsetinn segir fjölda nauðgana skýrast af fegurð kvenna

Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, gantaðist með fjölda nauðgana íræðu sem hann hélt í borginni Mandaue í gærkvöldi. 

Duterte, sem hefur vakið hörð viðbrögð um allan heim vegna morða á fíkniefnaneytendum og -sölum án dóms og laga, hefur ítrekað sýnt kvenfyrirlitningu á opinberum vettvangi. 

„Þeir segja að margar nauðganir hafi átt sér stað í Davao. Svo lengi sem það eru margar fallegar konur eru margar nauðganir. Hver samþykkir hvort sem er að gera það í fyrstu tilraun?“  sagði Duterte meðal annars í ræðu sinni.

 

 

Athygli vakti í fyrra þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti hrósaði Duterte í hástert fyrir aðgerðir í fíkniefnamálum í símtali þeirra á milli, sem greint var frá opinberlega eftir að útskrift þess var lekið. „Þú vinnur frábært starf,“  sagði Trump.

Síðar, í nóvember í fyrra, sagði Trump þá eiga vel saman. „Við náum frá­bær­lega sam­an,“ sagði hann.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi
1
Nýsköpun

Ís­lenskt kolla­gen fram­leitt á Blönduósi

Norð­an heiða, nán­ar til­tek­ið á Blönduósi, er ís­lenskt kolla­gen fram­leitt. Um er að ræða fyr­ir­tæk­ið Prot­is sem nýt­ir sér verk­smiðju Vil­ko þar á slóð­um, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ým­is­legt í far­vatn­inu hjá þeim, með­al ann­ars sam­starf við drykkjar­vöru­fram­leið­end­ur er­lend­is sem eig­and­inn bind­ur mikl­ar von­ir við.
„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
4
ViðtalHorft til Evrópu

„Ef við vilj­um gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar á hag­kerf­inu er­um við bet­ur sett ut­an ESB“

Full­veldi Ís­lands og sjálf­stæði í pen­inga- og rík­is­fjár­mál­um þarf að vera til stað­ar ef vinstri stjórn kemst til valda og vill gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar, seg­ir Jök­ull Sól­berg Auð­uns­son, stjórn­ar­mað­ur í Til vinstri við ESB. Hann vill horfa til BRICS-ríkj­anna og var­ar við mögu­leik­an­um á her­skyldu inn­an ESB.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár