Stofna félög vegna umskipunarhafnar í Finnafirði

Sveitar­félög og framkvæmda­aðilar taka nú skref í áfram­haldandi þróun umskipunar­hafnar í Finna­firði, í nágrenni við svæði þar sem breskur auðmaður sankar að sér jörðum. Höfnin mundi þjónusta sjóflutninga á Norðurslóðum og olíu- og gasiðnað, en land­eigendur eru misánægðir. Sveitar­stjóri segir ekkert benda til þess að auðmenn sem keypt hafa upp nálægar jarðir tengist verk­efninu.

Fyrirhugað iðnaðarsvæði í Finnafirði
Fyr­ir­hugað iðn­að­ar­svæði í Finna­firði Gunn­ólfs­vík er í eigu rík­is­ins, en suð­ur­hluti hafn­ar­innar er á landi í eigu fólks sem tengt er Jóhann­esi Krist­ins­syni stór­eigna­manni á svæð­inu. Mynd: EFLA

Unnið er að stofnun félaga í eigu framkvæmda­aðila og sveitar­félaga vegna uppbyggingar umskipunar­hafnar í Finna­firði á Norð­austurlandi. Langtíma­markmiðið er þjónusta við skipa­flutninga á Norðurslóðum og olíu- og gasiðnað í Norður-Atlantshafi. Verk­fræðingur segir svæðið einstakt vegna mikils undirlendis sem megi nota undir hafnsækna starfsemi, en ríkasti maður Bretlands, James Ratcliffe, og Jóhannes Kristinsson, kenndur við Fons, eiga stóran hluta lands í nágrenni fjarðarins og hafnar­stæðisins.

„Það var samþykkt að stofna félög til að halda utan um verkefnið til þess að gera þetta samstarf betur innrammað og skilvirkara,“ segir Elías Pétursson, sveitar­stjóri Langa­nesbyggðar. „Það eru ofboðs­lega mörg „ef“ í þessu ennþá. Það er varkár velvilji og stuðningur við verkefnið á svæðinu. Að sjálfsögðu eru einhverjir sem hafa meiri efasemdir en aðrir og það er hið besta mál. Mér finnst vera mjög skynsamlegt viðhorf gagnvart þessu. Það er enginn æsingur og enginn með dollara­merki í augunum.“

Aðspurður segist Elías ekki vita …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár