Skilti um einkavæðingu sett upp í óþökk Sjálfstæðisflokksins

Óprút­tnir aðilar virð­ast hafa sett upp skilti á Lauga­veg­inum á meðan Reykja­vík Pride stóð yfir. Á skilt­inu mælir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með einka­væð­ingu. „Ekki á vegum flokks­ins,“ segir for­maður SUS.

Skilti um einkavæðingu sett upp í óþökk Sjálfstæðisflokksins
Skiltið á Pride Á skilt­inu voru tvö merki Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Lóa Hjálmtýsdóttir

Margir sem áttu leið um Laugaveg á meðan Reykja­vík Pride hátíð­ar­höldin stóðu yfir ráku augun í áróð­urs­skilti fyrir framan skemmti­stað­inn Bravó á horni Klapp­ar­stígs. Skiltið var merkt Sjálf­stæð­is­flokknum, en for­maður SUS segir það ekki hafa verið á vegum flokks­ins.

„Einka­væð­ing inn­viða sam­fé­lags­ins er lang, lang besta leiðin .... fyrir okkur“ stóð á skilt­inu. Auk þess prýddi skiltið fálki, ein­kenn­is­tákn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og kosn­inga­merki flokks­ins XD.

„Þetta er ekki á vegum flokks­ins,“ segir Ingvar Smári Birg­is­son, for­maður Sambands ungra Sjálf­stæð­is­manna (SUS), í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. Nokkur umræða varð um skiltið á sam­fé­lags­miðlum, sem þótti ósmekk­legt í til­efni hátíð­ar­hald­anna. Nú virð­ist ljóst að það hafi verið sett upp af ein­hverjum sem sigldi undir fölsku flaggi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár