Kom í veg fyrir brottflutning hælisleitanda: Neitaði að setjast niður í flugvél

Sænska bar­áttu­konan Elin Ersson kom í veg fyrir að afgönskum hæl­is­leit­anda yrði vikið úr landi með því að neita að setj­ast niður í flug­vél­inni sem flytja átti hæl­is­leit­and­ann úr landi. Íslenskar konur sem gerðu svipað árið 2016 fengu önnur við­brögð.

Kom í veg fyrir brottflutning hælisleitanda: Neitaði að setjast niður í flugvél

Elin Ersson, sænskur háskóla­nemi og bar­áttu­kona, kom í veg fyrir brott­flutn­ing hæl­is­leit­anda frá Gauta­borg til Afganistan með því að neita að setj­ast niður í flug­vél sem flytja átti hæl­is­leit­and­ann úr landi á mánu­dag.

Elin bók­aði flugið til að koma í veg fyrir að ungum afgönskum manni yrði vikið úr landi en sá maður var ekki um borð í vél­inni. Hins vegar var annar afganskur maður á sex­tugs­aldri um borð sem flytja átti úr landi og stóð því Elin upp og krafð­ist þess að látið yrði af brott­flutn­ingi manns­ins. Sagði hún að mað­ur­inn yrði lík­leg­ast drep­inn ef hann yrði sendur til Afganistan.

Elin tók mynd­skeið af athæf­inu og birti það á Facebook-síðu sinni og hefur það notið mik­illa vin­sælda en um 2,5 millj­ónir manna hafa horft á mynd­skeiðið. Margir far­þeg­anna voru pirraðir á athæfi Elinar og veitt­ist til að mynda breskum maður að henni, reif af henni sím­ann og sagði henni að setj­ast niður. Síðar stóð tyrk­neskur maður upp til stuðn­ings og heilt fót­boltalið sem sat aft­ast í vél­inni.

Að lokum var látið undan kröfum Elinar og hæl­is­leit­and­anum fylgt úr vél­inni. Elin beið með að yfir­gefa vél­ina sjálf þangað til að hún hafði tryggt að mað­ur­inn væri far­inn frá borði áður en hún sjálf yfir­gaf vél­ina.

Myndband af athæf­inu má sjá hér.

Ekki sömu viðbrögð á Íslandi og í Svíþjóð

Ragn­heiður Freyja Krist­ín­ar­dóttir og Jórunn Edda Helga­dóttir

Tvær íslenskar konur voru hand­teknar vorið 2016 um borð í Kötlu, flug­vél Icelandair, sem var á leið til Stokk­hólms en um borð var Eze Okafor, níger­ískur flótta­maður sem sótt hafði um hæli hér á landi. Konurnar tvær heita Ragn­heiður Freyja Krist­ín­ar­dóttir og Jórunn Edda Helga­dóttir og var þeim sleppt úr haldi lög­reglu eftir tæpa sjö klukku­tíma. Þá hafa þær ekki verið ákærðar vegna mót­mæl­anna.

Eins og Elin báðu Ragn­heiður og Jórunn flug­far­þega um að sýna sam­stöðu með því sem þær köll­uðu brot á mann­rétt­indum hæl­is­leit­anda með því að standa upp. 

Skarst á hendi.Ragn­heiður Freyja skarst á hendi þegar hún var hand­tekin af lög­regl­unni.

„Við stóðum upp þegar allir far­þegar voru komnir um borð og létum flug­far­þega vita af þeim mann­rétt­inda­brotum sem ættu sér stað með brott­vísun Eze úr landi. Við vorum einu sinni beðnar um að setj­ast niður og eftir það tók flug­freyjan strax þá ákvörðun um að vísa okkur úr flug­vél­inni,“ sagði Ragn­heiður Freyja í sam­tali við Stundina skömmu eftir atburð­inn.

Skömmu síðar fyllt­ist flug­vélin af lög­reglu­mönnum en sam­kvæmt vitnum var mik­ill við­búnar á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna mót­mæl­anna. Ragn­heiður sagði tvo lög­reglu­menn hafa byrjað á því að hlaupa um borð í vél­ina og að þeir hefðu strax hand­tekið hana.

„Síðan fylgja þrír eða fjórir sem fara með Jórunni út að land­gangi sem hafði verið keyrt upp að flug­vél­inni. Úti á plani stóðu fjöl­margir lög­reglu­bílar og örugg­lega fimmtán lög­reglu­menn. Ég var tekin úr sæt­inu og mér skellt niður með and­litið við stig­ann og hend­urnar reiddar aftur mjög harka­lega. Ég er hand­járnuð mjög harka­lega og járn­unum rykkt saman til þess að þrengja þau eins mikið og hægt var,“ sagði Jórunn sem var marin á öxl og upp­hand­legg eftir hand­tök­una.

Sama var gert við Ragn­heiði en að hennar sögn voru þær síðan rifnar upp á hand­járn­unum en þar sem þau höfðu verið þrengd svo mikið þá skarst hún á hendi líkt og þær ljós­myndir sýndu sem teknar voru stuttu eftir að þær voru leystar úr haldi lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum.

Hér má sjá mynd­band frá No Borders Iceland frá mót­mælum Ragn­heiðar Freyju og Jórunnar Eddu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár