Kátir sýslu­menn Þórólfur Hall­dórs­son er sýslu­maður á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Anna Birna Þrá­ins­dóttir var sýslu­maður á Suð­ur­landi þegar emb­ættið veitti umsögn um tálm­un­ar­frum­varpið í fyrra. Embættin líta á tálmun sem ofbeldi. Mynd: Stjórnarráðsvefur

Sýslumenn skilgreina tálmun sem ofbeldi

Hrefna Frið­riks­dóttir, pró­fessor í fjöl­skyldu­rétti, furðar sig á túlkun sýslu­manns og bendir á að því er hvergi slegið föstu í lögum eða lög­skýr­ing­ar­gögnum að tálmun á umgengni jafn­gildi ofbeldi.

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Sýslu­mað­ur­inn á Suð­ur­landi skil­greina  umgengni­stálm­anir sem ofbeldi gegn börnum og senda gjarnan barna­vernd­ar­nefndum til­kynn­ingar um slíkt ofbeldi eftir upp­kvaðn­ingu dag­sekt­ar­úr­skurða.  

Telur nálg­un­ina óæski­legaHrefna Frið­riks­dóttir laga­pró­fessor segir engum til góðs að nálg­ast tálm­un­ar­mál með ein­streng­ings­legum hætti og skil­greina tálmun almennt sem ofbeldi.

Hrefna Frið­riks­dóttir, pró­fessor í fjöl­skyldu­rétti við Háskóla Íslands og einn af höf­undum frum­varps sem lá til grund­vallar end­ur­skoðun á barna­lögum árið 2012, er ósam­mála túlkun sýslu­manns og bendir á að því sé hvergi slegið föstu í lögum eða lög­skýr­ing­ar­gögnum að tálmun á umgengni jafn­gildi ofbeldi.

„Það er mjög umdeil­an­legt hvort skil­greina eigi tálmun sem ofbeldi og það er sér­stak­lega umdeil­an­legt hvort það sé nokkur þörf á því eða hvort nokkur sé neinu bætt­ari við það,“ segir hún.

Stundin hefur undir höndum tvær til­kynn­ingar sem sýslu­manns­full­trúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sendu barna­vernd­ar­nefnd í fyrra. Í báðum til­vikum er um að ræða mæður sem sýslu­manns­full­trúar saka um and­legt ofbeldi gegn börn­unum sínum, ein­vörð­ungu á þeim grund­velli að kveð­inn hafi verið upp dag­sekt­ar­úr­skurður og sýslu­maður telji þær hafa tálmað umgengni. 

Til­kynn­ing­arnar virð­ast staðl­aðar; þær eru orð­aðar með svip­uðum hætti og ein­ungis til­greint að „móðir hafi tálmað umgengni barns­ins við föður“ og þannig beitt barnið „til­finn­inga­leg[u]/sál­ræn[u] ofbeldi“. Konurnar fengu ekki að vita af til­kynn­ing­unum fyrr en um ári eftir að þær voru sendar og í hvor­ugu til­vik­inu hafði sýslu­manns­full­trúi eða sér­fræð­ingur í mál­efnum barns rætt við barnið sem átti í hlut. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár