Lyf gegn meinvarpandi krabbameinsfrumum

Ný rann­sókn gefur vonir um að lyf muni geta hindrað dreif­ingu krabba­meins á milli líf­færa, eða svokölluð mein­vörp.

Lyf gegn meinvarpandi krabbameinsfrumum
Von um nýtt tól í bar­átt­unni Ný rann­sókn bendir til þess að ákveðin sam­eind, kölluð KBU2046, hindri dreif­ingu krabba­meins milli líf­færa. Myndin er svið­sett. Mynd: Shutterstock

Rann­sókn­ar­hópur við Oregon Health & Science Uni­versity leit­að­ist við að finna sam­eind sem hefði áhrif á hreyf­an­leika krabba­meins­frumna og þannig eig­in­leika þeirra til að mein­varp­ast yfir í önnur líf­færi. Slíkt lyf er því ekki sér­tækt fyrir ákveðið krabba­mein, heldur er það sér­tækt fyrir ákveðin stig krabba­meina. 

Við leit sína fann hóp­ur­inn KBU2046, sam­eind sem hindrar virkjun á próteini sem kall­ast Heat shock prot­ein 90 β (HSP90β). Þegar sam­eindin er til staðar binst það við prótín sem sér um að kveikja á HSP90β. 

Hvers vegna virkni HSP90β hefur áhrif á mein­vörp er ekki vitað, en það sem mestu máli skipti í þess­ari rann­sókn var að finna lyf sem gæti hindrað mein­vörp, sama hvaðan þau ættu upp­runa sinn.

Þegar virkni KBU2046 var prófuð kom í ljós að lyfið hindrar hreyf­an­leika brjósta-, ristil-, blöðru­háls­kirtils- og lungna­krabba­meins­frumna. Minni hreyf­an­leiki frumn­anna þýðir að þær hafa minni getu til að mein­varp­ast. Að auki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár