Loftslagsbreytingar ógna framtíð fiskveiða

Lofts­lags­breyt­ingar eiga sér ekki stað á einni nóttu en talið er að öfgar í veð­ur­fari, og sér í lagi fjölgun storma, geti gerst hraðar en breyt­ingar á borð við hlýnun og súrnun sjávar.

Loftslagsbreytingar ógna framtíð fiskveiða

Ýmislegt bendir til þess að þær lofts­lags­breyt­ingar sem nú eiga sér stað á jörð­inni komi til með að hafa afdrifa­ríkar afleið­ingar fyrir mann­kynið. Á dög­unum birt­ist grein í tíma­rit­inu Nature Climate Change sem fjallar um lítt ræddar afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga á fisk­veiðar: það er fjölgun storma. Að sögn höf­unda grein­ar­innar gætu slíkar breyt­ingar gerst hratt og ógnað bæði fisk­veiðum og þeim sem þær stunda.

Áhrifin misjöfn eftir heimshlutum

Það voru vís­inda­menn við Uni­versity of Exeter, Met Office, Uni­versity of Bristol og Willis Research Group sem stóðu að baki grein­inni. Við gerð hennar voru fyrri rann­sóknir á stormum og breyt­ingum á þeim greindar, ásamt fram­tíð­ar­spám á sama sviði. 

Við grein­ing­una kom í ljós að mis­jafnt er hver áhrifin eru talin vera eftir heims­hlutum. Spáð er fyrir um að stormum í kjöl­far monsoon-tíma­bils­ins í Karí­ba­haf­inu fari vax­andi, að felli­byljum í Austur-Kína fjölgi sem og að stormum í aust­an­verðu Norður-Atl­ants­hafi fjölgi. Aftur á móti er gert ráð fyrir að stormum fari fækk­andi í Mið­jarð­ar­haf­inu á næstu tveimur öldum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár