Leigutekjur fasteignafélaganna Heima, Reita og Eikar jukust samanlagt um 4,6 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins, miðað við sama tímabil í fyrra. Félögin höfðu alls 37,2 milljarða í leigutekjur, sem er 14 prósenta aukning og talsvert umfram almenna verðlagsþróun. Rekstrarhagnaður þeirra fyrir matsbreytingar jókst enn meira, eða um 15 prósent.
Á sama tíma hækkuðu hrein fjármagnsgjöld félaganna um rúma ellefu milljarða króna og námu 32,3 milljörðum. Það er meira en samanlagður rekstrarhagnaður þeirra fyrir matsbreytingar, sem nam 26 milljörðum króna. Hjá Eik er rekstrarhagnaðurinn einnig reiknaður fyrir afskriftir og söluhagnað.
20.700 milljónir
Félögin skiluðu samanlagt 9,5 milljarða króna hagnaði eftir skatta, tæpum þremur milljörðum minna en á sama tímabili í fyrra.
Verðbólgan hækkar bæði leiguna og skuldirnar
Fasteignafélögin fá stóran …
Sérðu villu? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir