10 Rússlandsferðir

Valur Gunn­ars­son fer frá villta austri 10. ára­tug­ar­ins til Pútín tím­ans í dag og rifjar upp ástir og örlög.

10 Rússlandsferðir
Moskva St. Basil dóm­kirkjan við Rauða torgið í Moskvu hýsir nú safn. Mynd: Shutterstock

Eins og flestir af minni kyn­slóð kynnt­ist ég Rúss­landi fyrst í gegnum bíó og sjón­varp. Þeir voru vondu kall­arnir í James Bond og Rambó myndum og gott ef ekki fréttum líka. Kalda stríðið var með kaldasta móti í upp­hafi 9. ára­tug­ar­ins, Rússar höfðu ráð­ist inn í Afganistan og Banda­ríkja­menn hót­uðu að vopna­væða him­in­geim­inn. En síðan hitt­ust Reagan og Gor­ba­stjoff í Höfða og allt sner­ist til betri vegar. Eða þar til Sov­ét­ríkin hrundu og Rússland varð villta austrið, maf­ían barð­ist á götu­hornum og það voru spila­víti á hverju horni. Rússar birt­ust enn í bíó­myndum, en voru nú á víxl kjána­legir eða hættu­legir gangsterar.

Það var ekki fyrr en undir lok ald­ar­innar að ég kynnt­ist Rúss­landi af eigin raun. Ég var skiptinemi við Háskól­ann í Helsinki sem hefur stærsta slav­neska bóka­safn utan móð­ur­lands­ins, lærði Rúss­lands­sögu og hitti Rúss­lands­fræð­inga á hverjum mánu­degi á Teerenpeli barnum. Margir þeirra voru komnir við aldur og kusu frekar að eyða sumrum sínum í Finn­landi en í Rúss­landi, þar sem þægi­legra er að búa og auð­velt að skyggn­ast yfir þegar þess þörf. Þekkt­astur þeirra var Richard Stites, sér­legur ráð­gjafi Madel­eine Albright, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, í Rúss­lands­málum, sem hafði stofnað félags­skap­inn.  

Jarðsprengjusvæði og varðturnar

Mest áhrif hafði þó Julia Sesar Chicaiza, rúss­nesk snót sem átti pabba sem sagð­ist vera Spán­verji en kom í ljós að var reyndar frá Ekvador. Hafði hann verið við nám í Moskvu en gert að rýma her­bergi sitt til að gera pláss fyrir íþrótta­menn og blaða­menn þegar Ólymp­íu­leik­arnir voru haldnir þar í borg árið 1980. Hann sást ekki framar, en móð­irin gift­ist síðar Finna og því var Júlía stödd í sama bekk og ég. Mér fannst eins og hún væri frá annarri plánetu, fór í orþódox­kirkj­una til að kveikja á kerti fyrir hvert próf en virt­ist samt ekki einu sinni geta ímyndað sér til­vist nokk­urs guðs. Komm­ún­ist­arnir reyndu jú að gera út af við trú­ar­brögðin, og tókst að nokkru leyti. 

Grafhýsi LenínsGestir bíða í röðum eftir að kom­ast inn í graf­hýsi Leníns á Rauða torg­inu, 22. apríl síð­ast­lið­inn á 138. afmæl­is­degi bylt­ing­ar­manns­ins.

Undir lok annar komu tveir íslenskir vinir í heim­sókn og við héldum af stað austur á bóg­inn. Aðkoman var eig­in­lega alveg eins og maður hafði ímyndað sér. Lestin var svört og drunga­leg og gam­al­dags, bar nafnið Tolstoi og í veit­inga­vagn­inum var boðið upp á pönnu­kökur með kav­íar undir krist­als­ljósakrónum. Þegar komið var að landa­mær­unum var numið staðar við varð­turna og jarð­sprengju­svæði. Stíf­máluð stúlka í felu­lita­bún­ing gekk inn, lyfti upp rúmunum með sitt­hvorri hendi til að athuga hvort við værum með smygl­varn­ing og heimt­aði að sjá vega­bréfin. Loks gat ferðin haldið áfram og við vorum komnir inn í þetta land sem kalda stríðið hafði verið háð til að vernda okkur frá. Meira að segja trén voru öðru­vísi hérna en Finn­lands­megin, óhirt­ari og villt­ari. 

Þegar við vökn­uðum um morg­un­inn vorum við komnir til Moskvu. Það var hálf óraun­veru­legt að sjá Rauða torgið, Kremlið, Lenín liggj­andi í gler­kist­unni. Enn voru útlend­ingar fremur sjald­gæf sjón og eldri maður af gyð­inga­ættum tók okkur að sér og sýndi okkur borg­ina. Ungar stúlkur stóðu í röðum við neð­an­jarð­ar­lest­ar­göngin og pískr­uðu þegar við gengum hjá. „Þetta eru vænd­is­konur,“ til­kynnti sá gamli. Og maður fékk það fljótt á til­finn­ing­una að hér væri allt til sölu, meira að segja götu­skiltin voru í boði Coca-Cola og glæsi­bif­reiðar keyrðu fram­hjá gömlum konum, betlandi með orður sem þær höfðu fengið fyrir þjón­ustu við ríki sem var ekki lengur til. Nýrúss­arnir, eins og þeir voru þá kall­aðir, létu mikið ber­ast á. Tilraun til að kynna Marl­borom­ann­inn í Rúss­landi fór fyrir lítið, hér sá eng­inn róm­an­tík­ina í því að vera einn og skítugur í óbyggðum, olíg­ar­k­arnir voru að taka yfir. 

Grátið í lestum

MoskvaEin­kenn­is­bif­reið Rúss­lands, Ladan, nýtt sem lög­reglu­bif­reið.
FátæktFólk á göt­unni í Moskvu.

Moskva hafði sterk áhrif, stór­borg á mótum Asíu og Evrópu með snert af báðu, en menn­ing­ar­borgin Pét­urs­borg minnti meira á vestur-evr­ópska stór­borg í nið­ur­níðslu. Hinar ótal hallir höfðu séð glæst­ari stundir. Þegar Þjóð­verjar gerðu mynd­ina Der Unter­gang, sem átti að sýna Berlín undir lok stríðs­ins þegar allt hafði verið lagt í rúst, var hún tekin upp hér. En borgin var lif­andi. Öllu ægði saman, það var eins og allir straumar vest­urs­ins hefðu flætt yfir í einu og ekki enn farnir að aðgrein­ast. Á einu götu­horni var rokka­billí­band að spila í fullri Elvis múnd­er­ingu, á því næsta breik­dans­arar í besta eitís stíl, fjöru­tíu ár höfðu hér átt sér stað á innan við ára­tug. Pét­urs­borg skildi kannski ekki eftir sig jafn sterkt eft­ir­bragð og Moskva, en ég átti eftir að kynn­ast henni betur síðar. 

Við héldum ferð­inni áfram til Eystra­salts­land­anna og það áttu eftir að líða þrjú ár þar til ég sneri aftur til Rúss­lands. Ég var þá aftur búsettur í Helsinki og eitt­hvað hafði ræst úr sam­band­inu við Júlíu Sesar. Og þó, við hættum saman kvöldið áður en ég fór til að hitta kunn­ingja mína sem voru skiptinemar við Háskól­ann í Pét­urs­borg og grét í lest­inni alla leið­ina yfir. 

Ekki var að sjá að borgin hefði mikið breyst. Margt var enn með sov­ésku fyr­ir­komu­lagi þar sem öllum hafði verið tryggð atvinna. Í mörgum mat­vöru­búðum pant­aði maður vör­urnar hjá einum starfs­manni, sá næsti afhenti þær og sá þriðji tók við greiðslu. Þjón­ustu­lundin var ekki upp á marga fiska, eitt sinn fengum við okkur ís hjá Blóð­kirkj­unni við Griboedov síkið sem var reist á staðnum þar sem Alex­ander II. Rússa­keis­ari var myrtur af níhílistum árið 1881. Afgreiðslu­konan afgreiddi annan ísinn, fékk sér sígar­ettu og spjall­aði við vin­konu sína og afgreiddi síðan hinn. Mér fannst þetta sjar­mer­andi, en vinur minn sem hafði verið í borg­inni allan vet­ur­inn var ekki alveg svo viss. 

Frá Pétursborg til Múrmansk

Næsta ferða­lag til Pét­urs­borgar átti sér stað þá síðar um sum­arið og ferðin öllu ánægju­legri. Sættir höfðu tek­ist við Sesar og nú var hún með í för. Sagt er að rúss­neskar konur þrái vest­ræna kærasta til að kom­ast í burtu, en hér var því öfugt farið. Allt síðan í vetr­ar­stríð­inu hafa Rússar verið litnir horn­auga af mörgum Finnum og Júlía þráði alltaf að snúa aftur heim. Nú skyldi látið verða af því og var ég með í för. Nóg var af hús­næði, allir leigðu út gesta­her­bergi eða fluttu í minna og létu íbúð­irnar undir túrista. Mér fannst þetta til marks um póst-sov­éskt ástand, en eitt­hvað svipað á sér stað í Reykja­vík í dag. Allir í land­inu harka, ef mann vantar far réttir maður ein­fald­lega út hönd­ina þar til ein­hver stoppar og prúttar um verð sem er brot af því sem leigu­bíll kostar, allt þetta löngu fyrir tíma Uber.

Peterhof-höllinGos­brunn­arnir við Peterhof-höll­ina þykja mikið lista­verk.

Við Júlía kynntum okkur Sum­ar­hall­irnar í grennd við borg­ina, Púskín og gos­brunn­ana í Peterhof og Mens­hikov­setrið þar sem Raspútín var myrtur. Sumarið leið hratt, allt of hratt, þar til kom að hinu óhjá­kvæmi­lega, að við hættum saman við Vetr­ar­síkið sem þykir ein­hver róm­an­tískasti staður borg­ar­innar. Hringur af henni og kveikj­ari sem ég hafði fengið að gjöf hurfu ofan í og þá var því lokið.

Þrjú ár liðu á ný og aftur var ég staddur í Finn­landi. Finnskur kunn­ingi frá Háskól­anum í Tampere var á leið til Múrmansk ásamt nem­endum í Norð­ur­slóða­fræðum frá Akureyri og bauð mér að koma með. Hér norðan við pól­baug var öðru­vísi um að lit­ast en í keis­ara­borg­unum. Stein­steypu­kassar frá Sov­ét­tím­anum stóðu út eins og kýli á stór­feng­legu lands­lagi og risa­vaxin stytta af sov­éskum her­manni ofan í hlíð­unum kór­ón­aði verkið. Borgin var reist í fyrri heims­styrj­öld til að auð­velda aðföng frá vest­ur­veld­unum og hart var barist um hana í þeirri seinni. Þjóð­verjar komust aldrei lengra en að Litsa dal, þar sem aðstæður voru svo erf­iðar að rúss­neskir og þýskir her­menn urðu stundum úti í faðm­lögum hvor við annan og varð hann kall­aður „Dalur dauð­ans“ en síðar „Heið­urs­dal­ur­inn“.

Morðhótun í Múrmansk

Einnig hér kynnt­ist ég stúlku sem nefnd­ist að sjálf­sögðu Svetlana. Hennar vegna sneri ég aftur, eftir að hafa ferð­ast land­leið­ina í gegnum Finnland frá Helsinki, en Svetu var hvergi að sjá. Þess í stað fékk ég eft­ir­minni­leg skila­boð í sím­ann sem til­kynntu: „I am boyfri­end of Sveta. Go home or I must broke your face.“ Ég gerði eins og lagt var til og hélt áleiðis til Moskvu. Ferða­lagið tók 36 tíma með lest og ég deildi klefa með tveim sjóliðum sem voru á leið­inni í frí og ungum nema sem vildi svo heppi­lega til að tal­aði ensku. Annar sjólið­inn var á leið­inni heim til Tat­arstan og átti því enn nokk­urt ferða­lag í vændum. 

„I am boyfri­end of Sveta. Go home or I must broke your face.“

Í Moskvu var verið að fagna því að 60 ár voru liðin frá stríðslokum. Rauða torgið var lokað af, þangað áttu aðeins fyr­ir­menni á borð við Halldór Ásgríms­son erindi. Gömul kona orðum prýdd og hafði vafa­lítið tekið þátt í stríð­inu sjálfu reifst við lög­reglu­menn um að fá að kom­ast að en varð lítið ágengt. Við fengum þó að sjá þotur fljúga yfir og skilja eftir sig slóð í rúss­nesku fána­lit­unum. Loks komu her­menn gang­andi frá torg­inu í bún­ingum í anda 1945. Tekið var í hönd­ina á hinum öldr­uðu og þeim þakkað fyrir fram­lag sitt í föð­ur­lands­stríð­inu mikla. Á bar nálægt torg­inu var kveikt í yfir­vara­skegg­inu á úrklippu sem átti að tákna Hitler.   

Aðeins leið hálft ár þar til ég var kom­inn aftur til Rúss­lands, nú til Pét­urs­borgar þar sem ég bjó í mánuð í árs­byrjun 2006. Ég var skráður í nám í rúss­nesku og bjó í grennd við nýnas­ista­hverfi í útjaðri borg­ar­innar þar sem lit­uðum skiptinemum var upp­álagt að fara ekki utandyra á afmæl­is­degi Hitlers. Í raun var ég að vinna í bók sem átti að ger­ast í Finn­landi og Rúss­landi en varð lítið úr verki og hélt aftur til Finn­lands þar sem ég kom mér fyrir í klaustri Orþódox­trú­ar­manna. Valamó klaustur var áður stað­sett á eyju í Ladoga vatni, stærsta vatni Evrópu, en þegar komm­ún­istar komust til valda í Rúss­landi flúðu munk­arnir yfir til Finn­lands þar sem þeir eru enn.

Erfið ástarmál í austurvegi

Bókin kom loks út haustið 2007 og nefnd­ist Konungur norð­urs­ins, en Rússland hafði horfið úr henni. Í milli­tíð­inni hafði ég farið aftur til Pét­urs­borgar þar sem Sveta sagð­ist vilja hitta mig en lét ekki sjá sig. Síðast þegar spurð­ist til hennar hafði ég keypt fyrir hana miða til Íslands, en ekki kom hún þá heldur. Þetta sama ár hélt ég enn til Pét­urs­borgar ásamt þeim vinum sem áður höfðu lært þar og annar gift sig til borg­ar­innar. Við létum ekki þar við sitja, heldur héldum einnig til Pskov, 200.000 manna mið­alda­borgar sem eitt sinn var í Hansa­sam­band­inu og er nálægt landa­mærum Eist­lands.

HöfundurMeð Karli Marx.

Að öðru leyti var sú ferð heldur við­burða­snauð, en það fór að draga til tíð­inda sum­arið 2010. Ég komst aftur í sam­band við Júlíu Sesar sem var flutt til Moskvu og farin að vinna sem túlkur í finnska sendi­ráð­inu. Finnska upp­eldið hafði þá gagn­ast henni þrátt fyrir allt saman. Einhver mesta hita­bylgja í manna minnum gekk yfir þetta sum­arið, gang­stétt­irnar límd­ust við skó­sól­ana og sama hvað maður drakk af vatni fór maður aldrei á kló­settið. Lög­reglan, sem gjarnan drýgði tekjur sínar sem því að sekta túrista á Rauða torg­inu fyrir ýmis minni­háttar afbrot, eins og að sjást með GSM síma, aðhafð­ist lítið, jafn­vel þegar fólk bað­aði sig í gos­brunn­unum. Þetta voru engar aðstæður til að end­ur­nýja ást­ar­sam­band, en okkur tókst þó að skoða heim­ili Búlgakov þar sem gráir kettir gerðu sig heima­komna og ætti ekki að koma neinum sem hefur lesið Meist­ar­ann og margar­ít­una á óvart. Ég hélt áleiðis með lest til Pét­urs­borgar og þaðan til Finn­lands og svo heim. Síðast spurð­ist til Júlíu þar sem hún bjó ásamt rúss­neskri kær­ustu í Helsinki og við­ur­kenndi fyrir mér að jú, rúss­neskar konur gætu verið erf­iðar í umgengni.

Sendiferðabíll fyrir barnseignir 

Rúss­lands­tíma­bili mínu virt­ist lokið, en haustið 2015 kynnt­ist ég rúss­neskri konu á kvik­mynda­há­tíð í Reykja­vík. Sumarið eftir var ég aftur staddur í Pét­urs­borg og nú var margt breytt. Villta austrið var horfið sjónum, hér voru ekki lengur aðkomu­menn að efn­ast ævin­týra­lega á bjór­sölu. Bannað var að reykja inn­an­dyra og ekki einu sinni hægt að kaupa áfengi út í búð eftir klukkan níu á kvöldin, þótt búð­ar­eig­endur pössuðu sig iðu­lega á því að stimpla út nokkrar flöskur til að selja eftir að klukkan sló. Engar vænd­is­konur var lengur að sjá í und­ir­göngum og meira að segja spila­vítin höfðu verið bönnuð. Heima­borg Pútíns hafði verið gerð upp, hall­irnar orðnar glæstar og lest­ar­kerfið með nútíma­legu sniði. Elena, en svo hét stúlkan, klæddi sig í hvítan kjól og saman fórum við í Vetr­ar­höll­ina, fyrrum dval­ar­staðar keisar­anna en hýsir nú eitt­hvert stærsta lista­safn í heimi, og gengum um þar til fæturnir gátu ekki meir. 

Einnig fórum við á bæj­ar­há­tíð í borg­inni Vyborg. Rússum fer fækk­andi og því er fólk hvatt til að eign­ast sem flest börn. Við fylgd­umst með stoltum for­eldrum taka við lyklum að sendi­ferða­bíl sem þau fengu að gjöf frá yfir­völdum fyrir að hafa eign­ast sjö­unda barn sitt. Í borg­inni er glæstur mið­alda­kast­ali frá Svía­tím­anum, en borgin var síðar nefnd Viipuri þegar hún til­heyrði Finn­landi og var næst­stærsta borg lands­ins. Rússar tóku hana yfir í vetr­ar­stríð­inu, Finnar end­ur­heimtu hana í fram­halds­stríð­inu en glöt­uðu henni aftur og íbú­arnir fluttu flestir til Finn­lands. Rússar fluttu inn í stað­inn og var ákveðið að taka aftur upp gamla sænska nafnið til að gera hana fjar­læg­ari Finnum. Þar má þó enn sjá finnskan arki­tektúr milli­stríðs­ár­anna, meðal ann­ars bóka­safn byggt af Alvar Aalto og minnir örlítið á Norræna húsið ef vel er að gáð. 

MoskvaNútíma­legt við­skipta­hverfi borg­ar­innar.

Útistöður við lögregluna

Það gerð­ist að ég fór út einn míns liðs þegar Elena var í vinn­unni og voru afleið­ing­arnar stundum óheppi­legar. Eitt sinn var ég tek­inn við það að míga í blóma­beð og tók lög­reglan þessu athæfi óstinnt upp. Yngri lög­reglu­þjónn­inn vildi gera sem mest mál úr þessu, en ég veif­aði blaða­mannapass­anum og sá eldri hristi haus­inn og benti mér á að fara. Sá yngri beindi vísi­fingrinum framan í mig til marks um að ég léti mér þetta að kenn­ingu verða. Vonandi fara landar mínir sér ekki að voða af álíka ástæðum þegar þeir koma til lands­ins í hrönnum að fylgj­ast með HM.

Ekki rætt­ist úr þessu sam­bandi frekar en öðrum og lauk því form­lega fyrir framan skrif­stofu Útlend­inga­stofn­unar í Skóga­hlíð, þegar í ljós kom að Elena fengi hvorki atvinnu né dval­ar­leyfi nema við giftum okkur að sögn afgreiðslu­fólks­ins, en sú ráð­stöfun þótti að öðru leyti ótíma­bær. 

Lauk þar með tíunda gerska ævin­týr­inu, en í fyrra átti ég þó leið um Sher­em­etyevo flug­völl í Moskvu á leið­inni til Kasakstan. Flug­völl­ur­inn var allur sá nútíma­leg­asti, enda mark­mið Rússa að gera hann að milli­lend­ing­ar­stað á milli Evrópu og Asíu. 18 ár höfðu liðið frá því ég fór fyrst með Tolstoi lest­inni yfir landa­mærin og lestin var víst end­ur­nýjuð árið 2014. Rússland tekur stöð­ugum breyt­ingum, en þó er nokkuð í að það fari fylli­lega að verða eins og Vest­ur­lönd. Enda lík­lega ekki ætl­unin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár