Gefa heiminum bækur móður sinnar

Hug­sjóna­konan, sér­kenn­ar­inn og rit­höf­und­ur­inn Heiður Bald­urs­dóttir hefði orðið sex­tug í dag, 31. maí. Hún lést um aldur fram, aðeins 34 ára, og lét eftir sig eig­in­mann og tvær barn­ungar dætur. Fjöl­skyldan heiðrar nú minn­ingu Heiðar með því að gefa heim­inum bækur hennar á raf­rænu formi.

Gefa heiminum bækur móður sinnar
Hug­sjóna­konur eins og mamma þeirra Syst­urnar Bryn­hildur og Þórey Mjall­hvít kynnt­ust mömmu sinni upp á nýtt þegar þær fóru að skoða ævi­starf hennar sem full­orðnar konur. Þær segj­ast hafa áttað sig á því að þær eru lík­ari henni í sér en þær höfðu gert sér grein fyrir. Mynd: Heiða Helgadóttir
Heiður Bald­urs­dóttirHún var afkasta­mikil og skrif­aði sex bækur um ævina.

Þær Bryn­hildur og Þórey Mjall­hvít, ásamt föður sínum, Ómari Harð­ar­syni, hafa á und­an­förnum mán­uðum farið gaum­gæfi­lega yfir höf­unda­verk móður þeirra, Heiðar Bald­urs­dóttur rit­höf­undar, og und­ir­búið það fyrir end­ur­út­gáfu. Heiður var ekki nema 34 ára þegar hún lést en hafði þrátt fyrir það látið að sér kveða á ýmsum sviðum. Hún hafði gefið fjórar bækur og hand­rit þeirra fimmtu og sjöttu var til­búið. Þrátt fyrir afköstin sinnti hún aðeins rit­störfum í hjá­verkum, því hún var virtur sér­kenn­ari og ötul bar­áttu­kona fyrir jafn­rétti barna, ásamt því að taka þátt í fjöl­breyttu gras­rótar- og félags­starfi, meðal ann­ars innan Kenn­ara­sam­bands­ins. „Já, mamma var afskap­lega mikil bar­áttu­kona,“ tekur Bryn­hildur undir. „Hún var rót­tæk í stjórn­mála­skoð­unum og mik­ill umhverf­is­vernd­ar­sinni og trúði stað­fast­lega á jafn­rétti á milli barna og hafði ákveðið að helga ævi sína …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár