Hafnarfjarðarbær greiddi 250 þúsund krónur fyrir viðtal við oddvita Sjálfstæðisflokksins

Sam­skipta­stjóri Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar og yfir­lýstur Sjálf­stæð­is­maður, Einar Bárð­ar­son, keypti opnu­um­fjöllun við Rósu Guð­bjarts­dóttur í kynn­ing­ar­blaði Frétta­blaðs­ins. Minni­hlut­inn hefur kallað eftir frek­ari upp­lýs­ingum um útgjöld Einars.

Hafnarfjarðarbær greiddi 250 þúsund krónur fyrir viðtal við oddvita Sjálfstæðisflokksins
Rósa Guð­bjarts­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Minni­hluti bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar hefur kallað eftir upp­lýs­ingum um útgjöld bæj­ar­ins til miðl­unar.

Rósa Guð­bjarts­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Hafn­ar­firði og for­maður bæj­ar­ráðs, var til við­tals í kynn­ing­ar­blaði Frétta­blaðs­ins um Hafn­ar­fjörð á þriðju­dag. Umfjöll­unin var keypt af Einari Bárð­ar­syni, sam­skipta­stjóra Hafn­ar­fjarðar, og kost­aði bæinn 250 þús­und krónur.

Gunnar Axel Axelsson, bæj­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði, gagn­rýnir kaupin og spyr hvort eðli­legt sé að slík umfjöllun sé keypt rétt fyrir kosn­ingar. „Mér finnst galið að bær­inn sé að kaupa umfjöllun með einum fram­bjóð­anda. Það er ljóst að ein­hver þarf að svara fyrir þetta,“ segir hann.

Í umfjöll­un­inni kemur fram hve ánægðir Hafn­firð­ingar eru með sveit­ar­fé­lagið sitt, hve líf­legur bær­inn hafi orðið á síð­ustu miss­erum og að verslun blóm­stri. Þá er fjallað um fram­tíð­ar­sýn Rósu og rætt við hana um nýja Hrauna­hverfið, svo­kallað „fimm mín­útna hverfi“, sem áætlað er að bygg­ist á næstu tíu til tutt­ugu árum.

Ákörð­un­ina um að kaupa umfjöll­un­ina tók Einar Bárð­ar­son en hann var ráð­inn sam­skipta­stjóri Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar tíma­bundið frá 1. ágúst í fyrra fram til 31. ágúst í ár. Einar hefur frá sextán ára aldri verið virkur í störfum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, meðal ann­ars átt sæti í flokks­ráði og mið­stjórn flokks­ins ásamt því að hann var ráð­inn aðstoð­ar­maður Kjartans Ólafs­sonar, þáver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, árið 2008.

Málið verður tekið fyrir á fundi bæj­ar­ráðs á morgun og að sögn Gunnars Axels hefur minni­hlut­inn kallað eftir frek­ari upp­lýs­ingum um útgjöld bæj­ar­ins til miðl­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár