Barnaverndarstofa neitar að afhenda barnaverndarnefndum gögnin sem Stundin og RÚV fengu

Per­sónu­vernd hefur tekið gagna­af­hend­ing­una til frum­kvæð­is­at­hug­unar og barna­vernd­ar­nefndir höfðu sam­band við lög­reglu vegna máls­ins.

Barnaverndarstofa neitar að afhenda barnaverndarnefndum gögnin sem Stundin og RÚV fengu

Barna­vernda­stofa neitar að afhenda barna­vernd­ar­nefndum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þau gögn sem Stundin og RÚV fengu aðgang að á grund­velli túlk­unar stofn­un­ar­innar á upp­lýs­inga­lögum í síð­ustu viku.  

Um er að ræða hund­ruð blað­síðna af skjölum, meðal ann­ars um ein­stök barna­vernd­ar­mál og umgengn­is­deilur for­eldra með nöfnum og ýmsum per­sónu­grein­an­legum atriðum afmáðum. 

Í gagna­pakk­anum er til að mynda að finna fund­ar­gerð af fundi Barna­vernd­ar­stofu um mál tveggja stúlkna sem hefur verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum.

Mörg mál­anna sem fjallað er um tengj­ast hins vegar ekki beint kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. 

Per­sónu­vernd hefur tekið gagna­af­hend­ing­una til frum­kvæð­is­at­hug­unar auk þess sem Frétta­blaðið greindi frá því að málið væri til skoð­unar hjá ákæru­sviði lög­reglu. Afhend­ingin kom barna­vernd­ar­nefndum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í opna skjöldu og hafa þær verið í sam­bandi við lög­reglu vegna máls­ins. 

Nefnd­irnar ósk­uðu eftir því þann 5. maí að fá aðgang að nákvæm­lega sömu skjölum og RÚV og Stundin fengu, þ.e. með sömu per­sónu­grein­an­legu atrið­unum afmáðum.

Stundin fékk upp­lýs­ing­arnar tveimur dögum eftir að hafa beðið um þær en barna­vernd­ar­nefnd­irnar hafa beðið svara í tæpa viku. Í dag var þeim til­kynnt að gögnin yrðu ekki afhent fyrr en farið hefði verið yfir málið með Per­sónu­vernd. 

Per­sónu­vernd sendi Stund­inni og RÚV bréf á dög­unum þar sem biðlað er til fjöl­miðl­anna að fara var­lega með gögnin. „Þau ákvæði laga nr. 77/2000 sem veita Per­sónu­vernd vald­heim­ildir, gilda ekki þegar vinnsla fer ein­göngu fram í þágu frétta­flutn­ings. Per­sónu­vernd telur hins vegar að í ljósi þess almenna hlut­verks hennar að standa vörð um vernd per­sónu­upp­lýs­inga geti reynst nauð­syn­legt að hún minni á þær kröfur sem þá gilda,“ segir í bréf­inu. Bent er á að huga verði að því ein­stak­lingar séu ekki auð­kenn­an­legir á grund­velli breytna sem sam­an­lagðar gefa til kynna hver á í hlut hverju sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár