Líf mitt í fimm réttum: Ítalskur matur breytti lífinu

Snemma á lífs­leið­inni fór Sig­ur­laug Margrét Jón­as­dóttir, dag­skrár­gerð­ar­maður á RÚV, að skoða upp­skriftir og velta fyrir sér hvernig mætti gera mat sem ómót­stæði­leg­astan. Þátta­skil urðu hins vegar í mat­lífi hennar þegar hún lærði að nota vín í mat. Þá byrj­uðu fugl­arnir að syngja og blómin að vaxa.

Líf mitt í fimm réttum: Ítalskur matur breytti lífinu
Sig­ur­laug Margrét Jón­as­dóttir Mynd: Heiða Helgadóttir

1. Grjónagrautur ömmu Sillu

Það eruð óskrifuð lög að grautur ömmu er bestur í heimi. Amma Silla gerði besta graut­inn og eld­aði þol­in­móð fyrir mig í hverju hádegi. Ef hún breytti út af van­anum og gerði brauð­súpu þá fór ég í hung­ur­verk­fall. Ég get enn dregið fram til­finn­ing­una þegar graut­ur­inn var kom­inn á diskinn og ég setti ótæpi­lega af kanil­sykri yfir, flýtti mér að blanda honum vel saman svo amma sæi ekki syk­ur­magnið.

Grjóna­grauturBörnin spara ekki kanil­syk­ur­inn út á graut­inn.

Svo sátum við í kyrrð­inni, frá bóka­her­berg­inu ómaði útvarpið og amma sett­ist á móti mér og horfði á mig borða með hönd undir kinn og opn­aði ósjálfrátt munn­inn í hvert skipti sem ég stakk upp í mig kúf­aðri skeið­inni – og hjarta mitt fyllt­ist ham­ingju. Svo getur lífið verið svo dásam­legt. Í dag sit ég á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár