Spyr hvort mál Braga sé „stormur í vatnsglasi“ og gengið hafi verið of langt

Þátt­ar­stjórn­and­inn Egill Helgason segir að margir séu orðnir býsna þreyttir á umræðu um mál Braga Guð­brands­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu.

Spyr hvort mál Braga sé „stormur í vatnsglasi“ og gengið hafi verið of langt
Egill Helgason Annar þátta­stjórn­andi Silf­urs­ins spyr hvort umræðan hafi gengið of langt í máli for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Mynd: RÚV

Egill Helgason, stjórn­andi umræðu­þátt­ar­ins Silf­urs­ins í sjón­varpi Rík­is­út­varps­ins, lýsti í gær umfjöllun Stund­ar­innar og ann­arra fjöl­miðla um mál Braga Guð­brands­sonar sem svo að málið hefði „tröll­riðið fjöl­miðlum“, að það hefði verið „býsna hart rekið í Stund­inni“. Margir væru orðnir „býsna þreyttir á því“.

Kristín I. Páls­dóttir, tals­kona Rót­ar­innar, félags um mál­efni kvenna með áfengis- og fíkni­vanda, gagn­rýnir Egil og við­mæl­endur hans fyrir að setja hag emb­ætt­is­manns í for­grunn fremur en hag barna.

Í síð­ustu for­síðu­um­fjöllun Stund­ar­innar var greint frá því að Bragi Guð­brands­son, sem er í leyfi sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, hefði beitt sér fyrir því að prests­sonur fengi að umgang­ast dætur sínar sem barna­vernd­ar­nefnd hafði skömmu áður vísað í Barnahús vegna gruns um kyn­ferð­is­lega mis­notkun af hendi föð­ur­ins. 

Þá kom fram að Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra hefði vitað af mál­inu en láðst að greina þing­inu frá því. Í kjöl­far frétta­flutn­ings­ins við­ur­kenndi félags­mála­ráð­herra að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Bragi hefði farið út fyrir starfs­svið sitt og hann hefði fengið til­mæli vegna máls­ins. Hvorki rík­is­stjórn­inni né Alþingi var þó greint frá því. 

Um leið og Bragi hlut­að­ist til um með­ferð máls­ins hjá barna­vernd­ar­nefnd átti hann ítrekuð sam­skipti við föður manns­ins, Þjóð­kirkju­prest sem er mál­kunn­ugur Braga frá því þeir störf­uðu báðir við barna­vernd­ar­mál. Meðal ann­ars var byggt á orðum Braga þegar Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík ákvað að leggja dags­sektir á móður stúlkn­anna vegna þess að hún heim­il­aði ekki föð­urnum að umgang­ast þær. Síðar var úrskurði sýslu­manns snúið við, meðal ann­ars á þeim grund­velli að meint kyn­ferð­is­brot væru enn til skoð­unar. 

„Stormur í vatnsglasi“

Egill velti því fyrir sér í þætt­inum hvort málið væri „bara stormur í vatns­glasi“ og spurði hvort það hefði „gengið of langt“. Við­mæl­endur hans voru þó þeirrar skoð­unar að vinnu­brögð Braga væru í anda „gamla Íslands“ og ekki í anda þess sem ætl­ast væri til af stjórn­sýsl­unni í dag.

Við­mæl­endur Egils í þætt­inum voru þau Friðjón Frið­jóns­son, fram­kvæmda­stjóri almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­is­ins KOM; Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, rit­stjóri Hring­brautar og fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar; Sigurjón M. Egilsson fjöl­miðla­maður og Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Íslenskrar erfða­grein­ingar. Rétt er að taka fram að Þóra Kristín hefur skrifað fréttir og greinar fyrir Stundina síð­ustu mán­uði.

Í þætt­inum kom til umræðu mál Braga sem Stundin hefur fjallað ítar­lega um upp á síðkastið. Egill setti tón­inn og hóf umræð­una á þann veg að málið hefði verið býsna hart rekið og margir væru orðnir þreyttir á því. Sigurjón tók lítt þátt í umræð­unni enda gerði hann í upp­hafi grein fyrir því að tengda­dóttir hans væri starf­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu. Hann til­tók hins vegar sér­stak­lega að hvað varði afhend­ingu gagna þeirra sem Stundin og RÚV fengu í hendur í síð­ustu viku, og hafa orðið til­efni til þess að bæði Per­sónu­vernd og Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hyggj­ast skoða þann gjörn­ing, að hann væri sann­færður um að tengda­dóttir sín, Heiða Björg Pálma­dóttir, hefði verið að sinna laga­skyldu sinni sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum.

Þóra Kristín sagði að málið horfði þannig við henni að þetta væri dæmi um gamla Ísland, þarna væri emb­ætt­is­maður sem lengi hefði setið á stóli og hnippti í kunn­ingja sína til að ganga í málin. „Við þekkjum þetta, þetta er afskap­lega óheppi­legt þar sem að konur og börn eru undir í svona við­kvæmum mála­flokki eins og barna­vernd­ar­málum að það sé hægt að benda á það að kunn­ingjar séu að hringja í kunn­ingja og biðja um ein­hverja greiða.“ Bætti Þóra Kristín því við að þetta væri vond stjórn­sýsla og benti enn fremur á að Bragi væri langt því frá óum­deildur emb­ætt­is­maður.

Fór með staðleysu um samskipti við ömmu barnanna

Sig­mundur Ernir sagði hins vegar að alltaf væru tvær hliðar á svona málum, rétt eins Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra sagði í Kast­ljós­við­tali á dög­unum. „For­stjóri Barna­vernd­ar­stofu getur aldrei setið á frið­ar­stóli. Þetta eru svo ofur­við­kvæm mál sem þarna eru og hann er nátt­úru­lega settur í mjög erf­iða stöðu and­spænis þing­nefnd­inni þegar hann þarf að verja sig án þess að geta lagt rökin fram á borðið,“ sagði hann. Rétt er að taka fram að ákveðið var að hafa fund Braga með vel­ferð­ar­nefnd lok­aðan svo Bragi gæti lagt rök fram á borðið. Þá sagði Sig­mundur að alltaf yrði „stormur í þessu vatns­glasi“ og að mál sem þessi ein­kennd­ust fyrst og fremst af hatri.

Friðjón sagði blasa við að málið væri allt afar sorg­legt. „Þarna er dauð­vona amma að biðja um að fá að umgang­ast barna­börn og fær það ekki,“ sagði Friðjón. Í umfjöllun Stund­ar­innar hefur hins vegar komið fram að afa og ömmu barn­anna bauðst að hitta stúlk­urnar en vildu það ekki nema faðir stúlkn­anna yrði einnig við­staddur, þrátt fyrir að Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar hefði ráð­lagt móð­ur­inni að halda stúlk­unum í „öruggu skjóli“ meðan meint kyn­ferð­is­brot föður væru rann­sökuð. 

Friðjón bætti enn fremur við að það vekti athygli að málið sem Stundin hefur fjallað um kæmi fram í dags­ljósið þegar ljóst væri að bjóða ætti Braga fram í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna og gerði því skóna að ein­hverjir and­stæð­ingar Braga vildu ekki una honum þess að fá þá stöðu.

Þá sagði Friðjón að þótt inn­koma Braga í barna­vernd­ar­málið í Hafna­firði væri „með gömlum hætti“ og „ekki það sem við ætl­umst til af stjórn­sýsl­unni í dag“, væri það „eitt það besta við Ísland að það er hægt að redda hlut­unum.“

Umræðan í þætt­inum vakti all nokkra athygli á sam­fé­lags­miðlum. Þannig skrif­aði Kristín I. Páls­dóttir, tals­kona Rót­ar­innar, hags­muna­sam­taka kvenna með vímu­efna­vanda, harð­orða færslu á Facebook-síðu sína, þar sem hún gagn­rýndi að við­mæl­endur í þætt­inum gerðu lítið úr mál­inu og litu meðal ann­ars fram hjá þætti vel­ferð­ar­ráð­herra í því. „Framlag Egils til umræð­unnar var aðal­lega fólgið í því að gera lítið úr mál­inu,“ segir hún. Kristín endar færsl­una svo: „Svona frétta­skýr­ing er ein­fald­lega algjör­lega óásætt­an­leg hjá RÚV.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár