Forsætisráðherra segir Ásmund ekki hafa brugðist trausti sínu

Engin gögn voru lögð fram um niður­stöður velferðar­ráðuneytisins í kvörtunar­málum barna­verndar­nefndanna þegar ríkis­stjórn Íslands ákvað að bjóða Braga Guðbrandsson fram til Barnaréttar­nefndar Sameinuðu þjóðanna. Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra tjáir sig um málið í viðtali við Stundina.

Engin gögn um efnislegar niður­stöður velferðar­ráðuneytisins í kvörtunar­málum barna­verndar­nefnda gegn Barna­verndar­stofu voru lögð fyrir ríkis­stjórn Íslands þann 23. febrúar þegar samþykkt var að bjóða Braga Guðbrandsson fram til Barnaréttar­nefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Ísland hönd. 

Þetta stað­festir Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra í viðtali við Stundina. Ásmundur Einar Daðason félagsmála­ráðherra fór hins vegar munnlega yfir almenn atriði á fundinum og gerði þannig ríkis­stjórninni grein fyrir því hvernig könnun ráðuneytisins vegna ávirðinga barna­verndar­nefnda á hendur Braga Guðbrands­syni var háttað. 

Eins og Stundin greindi frá í dag hefur Ásmundur Einar Daðason félagsmála­ráðherra búið yfir ítarlegum upplýsingum allt frá 31. janúar 2018 um afskipti Braga Guðbrands­sonar af tilteknu barna­verndar­máli og þrýsting sem Bragi beitti barna­verndar­starfsmann af samúð við fjöl­skyldu manns sem grunaður var um kynferðis­brot gegn dætrum sínum. 

Í umfjöllun Stundarinnar kemur fram að um leið og Bragi hlutaðist til um meðferð málsins átti hann ítrekuð samskipti við föður málsaðila, Þjóð­kirkjuprest sem er málkunnugur Braga frá því þeir störfuðu báðir við barnaverndarmál. Í þrýstingi Braga fólst sú krafa að móðir stúlknanna myndi hætta að „hamla umgengni“ þrátt fyrir að barna­vernd Hafnar­fjarðar hefði ráðlagt henni að halda dætrum sínum í öruggu skjóli frá föður þeirra meðan meint kynferðis­brot væru rannsökuð. Á sama tíma og afskiptin áttu sér stað lá tilvísunar­bréf barna­verndar­nefndar vegna málsins – þar sem farið var fram á rannsóknar­viðtöl við stúlkurnar í ljósi sterkra og marg­víslegra vísbendinga um að faðirinn hefði beitt þær kynferðis­ofbeldi – óhreyft í pósthólfi Barnahúss auk þess sem tölvu­kerfi Barnahúss mun hafa bilað. 

Hvorki forsætis­ráðherra né aðrir ráðherrar en Ásmundur höfðu vitneskju um hvers eðlis afskipti Braga voru þegar ákveðið var að bjóða hann fram til Barnaréttar­nefndar Sameinuðu þjóðanna.

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir í samtali við Stundina að hún hyggist fara vandlega yfir málið með Ásmundi Einari Daðasyni félagsmála­ráðherra. Hann muni jafnframt ræða málið við velferðar­nefnd á mánudaginn, en eins og Stundin greindi frá fyrr í dag telja nefndar­menn að Ásmundur hafi ekki komið heiðar­lega fram og eigi að segja af sér ráðherra­dómi.

Ásmundur Einar vildi ekki veita Stundinni viðtal í gær nema hann fengi að vita fyrirfram hverjar spurningarnar væru. Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra varð hins vegar við viðtals­beiðni og birtist samtal blaða­manns við Katrínu orðrétt hér á eftir. Orð blaða­manns eru skáletruð en orð Katrínar innan gæsalappa:

Upplýsti Ásmundur þig og ríkis­stjórnina, á fundinum 23. febrúar, um hvers eðlis afskipti Braga af þessu máli voru og hvers konar upplýsingum hann bjó yfir?

„Ráðherra greindi frá því að ýmis mál hefðu komið upp er vörðuðu samskipti Barna­verndar­stofu og barna­verndar­nefndar en fjallaði ekki um einstök mál, hvorki þetta né önnur. Hann greindi hins vegar frá því að ráðuneytið hefði farið yfir kvartanir barna­verndar­nefndanna og komist að þeirri niður­stöðu að forstjóri Barna­verndar­stofu hefði ekki gerst brotlegur í starfi. Það er það sama og fram kom í máli ráðherra á Alþingi á síðari stigum.“

Fenguð þið að sjá niður­stöður ráðuneytisins í kvörtunar­málum barna­verndar­nefndanna?

„Þú ert þá að vísa til bréfanna sem voru send og lögð fram í velferðar­nefndinni?“

Þau hafa verið kölluð niður­staða, en ef þetta er niður­staða þá hlýtur það að þýða að málin hafi ekkert verið rannsökuð, því það er ekkert í þessum bréfum og engin afstaða tekin til ávirðinga barna­verndar­nefndanna með tilliti til laga og reglna.

„Þessi bréf voru ekki lögð fram á þessum fundi heldur gerð munnlega grein fyrir þessari niður­stöðu.“

En minnis­blöðin sem bréfin byggja á, voru þau ekki heldur lögð fram?

„Nei, bréfin voru ekki lögð fram. Þau voru lögð fram fyrir velferðar­nefnd en ekki ríkis­stjórn og ekki minnis­blöðin heldur.“

Þannig í rauninni upplýsti hann ríkis­stjórn ekki…

„Hann fór yfir þessa niður­stöðu munnlega.“

Fór hann yfir það hvers eðlis afskipti Braga voru?

„Fór ekki inn í einstök mál nei.“

Finnst þér ekki sem forsætis­ráðherra að Ásmundur Einar hafi brugðist trausti þínu?

„Nei, ég dreg ekki þá ályktun, en hins vegar ætlum við að fara yfir þessi mál þegar hann kemur heim. Hann er staddur erlendis. Ég veit að hann mun fara yfir þetta líka með forstjóra Barna­verndar­stofu. Eins og ég segi, niður­staða ráðuneytisins var þessi. Ráðherra kveðst svo hafa boðið velferðar­nefnd aðgang að þessum gögnum og það verður að skýrast ef þar hefur orðið á einhver misbrestur.“ 

Nú hefurðu væntanlega lesið umfjöllun Stundarinnar. Er þetta ekki eitthvað sem þú hefðir viljað vita sem forsætis­ráðherra áður en ríkis­stjórnin tók þá ákvörðun að bjóða Braga fram til Barnaréttar­nefndar Sameinuðu þjóðanna?“

„Eins og ég segi þá kom skýrt fram í máli ráðherra að komið hefðu upp mál þar sem væri ágrein­ingur milli Barna­verndar­stofu og barna­verndar­nefnda. Og þótt hann færi ekki í einstök mál. Svo það lá alveg fyrir að þarna voru einhver mál uppi á borðum sem ráðuneytið hafði svo farið sérstak­lega yfir og komist að þeirri niður­stöðu.“ 

Hefðir þú og ríkis­stjórnin ekki átt að vera upplýst um hvernig ráðuneytið komst að þeirri niður­stöðu?

„Um einstök mál þá?“

Já, eða jafnvel bara almennt um laga­grund­völlinn varðandi afskipti forstjóra Barna­verndar­stofu af einstaka málum. Mér heyrist að svo sé ekki fyrst þið fenguð ekki bréfin eða minnis­blöðin.

„Ég held að það þurfi bara að fara yfir hvernig svona upplýsinga­gjöf á að vera háttað. Ég er ekki endilega þeirrar skoðunar að ríkis­stjórn eigi að vera upplýst um mál einstaklinga. Það er ekki endilega rétta leiðin í svona málum. En við munum fara yfir þetta.“

En ef þið fenguð ekki bréfin eða minnis­blöðin, þá hafiði heldur ekki verið upplýst um málið almennt séð, afskipti með tilliti til laga og reglna, eitthvað sem er rauður þráður í kvörtunum barna­verndar­nefndanna?

„Það var farið yfir þetta munnlega hvernig sú yfirferð hefði verið. Það var með þessum almenna hætti. Ekki farið í einstök mál heldur með sambærilegum hætti og í velferðar­nefnd.“

Er þér ekki brugðið að ráðherra í ríkis­stjórn þinni hafi vitað af þessu öllu, séð tölvupósts­samskiptin sem Stundin vitnar í, séð þennan útdrátt af símtali Braga við barna­verndar­starfs­manninn... að hann hafi vitað af þessu allan þennan tíma án þess að greina ykkur frá þegar þið ákveðið að bjóða Braga fram til Barnaréttar­nefndar Sameinuðu þjóðanna?

„Eins og ég segi, ég mun fara yfir þetta mál með ráðherra þegar hann kemur til landsins.“

En er Bragi hugsaður sem einhvers konar fulltrúi Norður­landanna í Barnaréttar­nefnd? Það má skilja tilkynningu á vef utan­ríkis­ráðuneytisins þannig, talað sérstak­lega um að hin Norður­löndin hafi ekki boðið fram fulltrúa. 

„Það kemur fram í minnis­blaði sem var lagt fyrir ríkis­stjórn að ekkert Norður­landanna hefur skilað inn framboði en Norður­löndin telji mikilvægt að tryggja áhrif sín í nefndinni. Svo það er væntanlega, þótt það sé ekki formleg skipting, þá gæti verið einhver hugsun í því.“

Þannig hin Norður­löndin hafa væntanlega látið vera að bjóða fram fulltrúa fyrst Ísland býður fram Braga?

„Það er ekki orðað þannig en kemur fram að norski fulltrúinn gefi ekki kost á sér til endur­kjörs og ekkert Norður­landanna hafi skilað inn framboði.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár