Ljósmæður höfnuðu samningi – Segja heilsu mæðra og nýfæddra barna stefnt í hættu

Heil­brigð­is­ráðu­neytið leggur til skerð­ingu á þjón­ustu til að hægt sé að hækka launa­lið. Meiri fjár­munir verði ekki settir í mála­flokk­inn en nú er. Myndi kosta um 30 millj­ónir á ári að ganga að kröfum ljós­mæðra.

Ljósmæður höfnuðu samningi – Segja heilsu mæðra og nýfæddra barna stefnt í hættu
Öryggi stefnt í voða Sjálf­stætt starf­andi ljós­mæður í heima­þjón­ustu höfn­uðu í gær­kvöldi samn­ings­drögum við Sjúkra­trygg­ingar. Þær segja að til­lögur heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins um skerð­ingu þjón­ustu myndu stefna heilsu mæðra og nýfæddra barna í hættu. Mynd: Shutterstock

Sjálf­stætt starf­andi ljós­mæður höfn­uðu í gær­kvöldi drögum að ramma­samn­ingi um heima­þjón­ustu sína við mæður og nýfædd börn. Ástæðan er sögð sú að heil­brigð­is­ráðu­neytið leggur í samn­ingnum til skerð­ingu á þjón­ustu, svo unnt sé að hækka laun ljós­mæðra, og það telja ljós­mæður algjör­lega óásætt­an­legt.

Ljós­mæður sem sinna heima­þjón­ustu hafa verið samn­ings­lausar frá því í febr­úar og í við­ræðum við Sjúkra­trygg­ingar Íslands um nýjan ramma­samn­ing um þjón­ustu þeirra fóru ljós­mæður fram á að tíma­gjald í verk­töku hækk­aði úr 4.394 krónum upp í 5.000 krónur. Sú hækkun myndi kosta rík­is­sjóð um 30 millj­ónir á árs­grund­velli. Töldu ljós­mæður sig hafa náð sam­komu­lagi um það við Sjúkra­trygg­ingar fyrir páska. Það var hins vegar ekki skiln­ingur Sjúkra­trygg­inga né vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins sem litu svo á að um minn­is­blað væri að ræða þar sem farið var yfir hvað þyrfti til að koma svo hækka mætti launa­lið samn­ings­ins. Í ljósi þess að ekki var búið að ganga frá samn­ingi lögðu allar sjálf­stætt starf­andi ljós­mæður í heima­þjón­ustu, 95 tals­ins, niður störf síð­ast­lið­inn mánu­dag.

Í gær­kvöldi voru lögð fram samn­ings­drög sem unnin voru á fundi Sjúkra­trygg­inga Íslands og full­trúa ljós­mæðra í gær. Nið­ur­staða fund­ar­ins var að samn­ings­drögin væru algjör­lega óásætt­an­leg „en þar leggur heil­brigð­is­ráðu­neytið til skerð­ingu við þjón­ustu við sæng­ur­konur til að unnt sé að hækka laun ljós­mæðra og voru skila­boðin sú að ekki yrði sett meira fjár­magn í þessa þjón­ustu.

Sem málsvarar kvenna og nýfæddra barna þeirra geta ljós­mæður ekki sætt sig við að þjón­ustan sé skert á þennan hátt og ekki sé unnt að tryggja öryggi þeirra á fyrstu sóla­hringum eftir fæð­ingu með þessu móti.  Heima­þjón­usta ljós­mæðra er í lyk­il­hlut­verki til að tryggja heilsu nýfæddra barna og að koma í veg fyrir inn­lagnir á fyrstu dögum ævinnar."

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár