Sigmundur Davíð lét setja upp stuðningssíður í nafni annarra

Nýr dómur lýsir því hvernig Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, lét setja upp tvær heima­síður sér til varnar í kjöl­far Panama­skjal­anna. Síðurnar voru sagðar í nafni stuðn­ings­manna hans.

Sigmundur Davíð lét setja upp stuðningssíður í nafni annarra

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, bað almanna­tengil um að setja á fót heima­síður sér til stuðn­ings í kjöl­far Panama­skjal­anna. Síðurnar voru sagðar settar saman og reknar af stuðn­ings­mönnum Sig­mundar Davíðs og var þeim ætlað að „setja strik í sand­inn og taka til varna“ vegna upp­ljóstrana um Wintris, aflands­fé­lags Sig­mundar og eig­in­konu hans. Síðurnar tvær, Panama­skjölin.is og Íslandi­allt.is, eru enn uppi.

Forysta ehf., fyr­ir­tæki almanna­teng­ils­ins Viðars Garð­ars­sonar, stefndi Fram­sókn­ar­flokknum vegna ógreiddrar vinnu fyrir Sigmund Davíð Gunn­laugs­son á meðan hann var enn for­maður flokks­ins í kjöl­far upp­ljóstrana Panama­skjal­anna. Krafa Viðars hljóð­aði upp á rúmar fimm millj­ónir króna. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var í dag sýkn­aður af kröfum Forystu í hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Fyr­ir­tæk­inu var gert að greiða allan máls­kostnað flokks­ins, eða 1,1 milljón króna.

Samkvæmt dómnum fékkst ekki sannað að fram­kvæmda­stjórn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi sam­þykkt að greiða fyrir vinnu Forystu. Vinnan hafi verið unnin fyrir Sigmund Davíð og verk­efni mynda­töku­manns sem Viðar sendi á mið­stjórn­ar­þing flokks­ins hafi verið „ætlað fyrir kosn­inga­bar­áttu Sig­mundar en ekki Fram­sókn­ar­flokks­ins“. Sigurður Ingi Jóhanns­son sigr­aði síðar Sigmund Davíð í for­manns­kjöri flokks­ins. Sig­mundur Davíð borg­aði hluta af kröfu Viðars sjálfur, eða rúma eina milljón króna.

Greindi „hverjir hefðu verið Sigmundi Davíði erfiðastir“

Samkvæmt vitn­is­burði Viðars hitt­ust Sig­mundur Davíð og hann til að setja síð­urnar á fót, auk þess að stofna til ann­arrar ímynd­ar­sköp­unar. „Í fyrsta lagi að farið yrði með Sigmund Davíð í mynda­tökur og kvaðst Viðar fyrir dómi hafa skipu­lagt mynda­töku, pantað tíma í stúd­íói og ráðið til þess ljós­mynd­ara og förð­un­ar­fræð­ing.“ segir í dómnum. „Í aðila­skýrslu sinni kvað Viðar ástæður mynda­tök­unnar hafa verið þær að mynd­irnar sem hefðu birst af Sigmundi í tengslum við umfjöllun um Panama-skjölin hafi verið mjög nei­kvæðar í sam­ræmi við mál­efnið en sam­kvæmt reynslu sinni væru fjöl­miðlar yfir­leitt sam­starfs­fúsir ef þeim væri útvegað myndefni.“

Þá er fjallað um hvernig Guðfinna Jóhanna Guð­munds­dóttir, þáver­andi borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi tengt Viðar og Sigmund Davíð, enda hafi nöfn Sig­mundar, Hrólfs Ölv­is­sonar, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Svein­bjargar Birnu Svein­björns­dóttur, þáver­andi borg­ar­full­trúa flokks­ins, öll komið fram í Panam­skjöl­unum.

„Í öðru lagi hefði Viðar látið smíða vef­síð­una panama­skjolin.is en í fram­burði Viðars kom fram að með henni hefði verið ætl­unin að „setja strik í sand­inn og taka til varna“,“ segir í dómnum. „Sagði Viðar hug­mynd­ina hafa verið að Sig­mundur gæti alltaf vísað í þennan vef ef Panama-skjölin kæmu upp kosn­inga­bar­átt­unni. Þá hefði í þriðja lagi verið smíð­aður vef­ur­inn islandi­allt.is og lýsti Viðar því að sá vefur hafi verið ætl­aður til að „sækja fram“. Aðspurður fyrir dómi nánar um hvaða þjón­usta hafi verið veitt til stefnda Fram­sókn­ar­flokks­ins á þessum tíma og hvað hafi verið fólgið í störfum Svans Guð­munds­sonar, eig­in­manns vitn­is­ins Guðfinnu Jóhönnu á þessum tíma, kvaðst Viðar hafa fengið hann til að vinna „ákveðna grein­ing­ar­vinnu, hvaða blaða­menn voru að skrifa hvað“ og „hverjir hefðu verið Sigmundi Davíð erf­ið­astir.““

Sagðist vera í aðdáendahópnum

Í sam­tali við Stundina í októ­ber 2016, sagð­ist Viðar vera aðdá­andi Sig­mundar Davíðs og kvaðst hann vera hluti af hópi stuðn­ings­manna hans, þrátt fyrir að vera sjálf­stæð­is­maður. „Aðdáun mín á mann­inum er alveg til staðar ennþá, mér finnst hann standa út úr sem póli­tíkus á Íslandi,“ sagði hann.

Á Panama­skjölin.is er sagt að vefnum sé við­haldið af stuðn­ings­mönnum Sig­mundar Davíðs og konu hans Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, sem einnig var nefnd í Panama­skjöl­unum í tengslum við félagið Wintris. Á síð­unni er gripið til varnar vegna umfjöll­unar um þau. Vefurinn Íslandi­allt.is er hins vegar almenn­ari og fjallar um verk og skoð­anir Sig­mundar Davíðs. „Vefurinn Íslandi­allt.is er settur saman og rek­inn af hópi ein­stak­linga úr ýmsum áttum með ólíkar stjórn­mála­skoð­anir sem eiga það sam­eign­legt að vera stuðn­ings­menn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar“ segir á vefnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár