Sigríður þrengdi að réttindum hælisleitenda sama dag og hún fékk stuðning frá þingmönnum Vinstri grænna

„Þannig virð­ist vera gert ráð fyrir að börn sem eru haldin sjúk­dómi sem ekki nær þeim alvar­leika­þrös­k­uldi að telj­ast skyndi­legur og lífs­hættu­legur skuli end­ur­send til við­töku­ríkis.“

Sigríður þrengdi að réttindum hælisleitenda sama dag og hún fékk stuðning frá þingmönnum Vinstri grænna

Ný reglu­gerð Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra sem birt­ist á vef Stjórn­ar­tíð­inda þann 14. mars síð­ast­lið­inn felur í sér að hert er umtals­vert á skil­yrðum þess að stjórn­völd geti tekið umsóknir hæl­is­leit­enda til efn­is­með­ferðar vegna heilsu­fars­á­stæðna. 

Í reglu­gerð­inni er því meðal ann­ars slegið föstu að heilsu­far hæl­is­leit­enda skuli hafi „tak­markað vægi“ nema ákveðin skil­yrði séu upp­fyllt, til dæmis að þeir glími við „mikil og alvar­leg veik­indi, svo sem skyndi­legan og lífs­hættu­legan sjúk­dóm og með­ferð við honum [sé] aðgengi­leg hér á landi en ekki í við­töku­ríki“.

Rauði kross­inn gagn­rýnir reglu­gerð­ina harð­lega og bendir á að hertu skil­yrðin ná bæði til full­orð­inna og barna. „Þannig virð­ist vera gert ráð fyrir að börn sem eru haldin sjúk­dómi sem ekki nær þeim alvar­leika­þrös­k­uldi að telj­ast skyndi­legur og lífs­hættu­legur skuli end­ur­send til við­töku­ríkis, jafn­vel þó að for­eldrar barns­ins muni þurfa að greiða fyrir með­ferð við sjúk­dómnum í við­töku­ríki, án þess að frekara mat fari fram á ein­stak­lings­bundnum aðstæðum barns­ins,“ segir í umsögn Rauða kross­ins um reglu­gerð Sigríðar.

Athygli vekur að Sigríður Andersen sam­þykkti reglu­gerð­ina þann 6. mars síð­ast­lið­inn, sama dag og hún varð­ist van­trausti á Alþingi og fékk stuðn­ing frá níu af ell­efu þing­mönnum Vinstri grænna, flokks sem hefur talað fyrir mannúð í flótta­manna­málum. 

Þrátt fyrir að Sigríður Andersen hafi áður beitt sér af hörku gegn rétt­ar­bótum fyrir hæl­is­leit­endur og átt frum­kvæði að laga­breyt­ingum sem þrengja að rétt­indum þeirra lýsti nær allur þing­flokkur Vinstri grænna yfir stuðn­ingi við áfram­hald­andi setu hennar á ráð­herra­stóli, þar sem hún fer meðal ann­ars með mál­efni flótta­manna og mann­rétt­inda í rík­is­stjórn. 

Síðasta haust sam­þykkti Alþingi breyt­ingar á útlend­inga­lögum sem fólu í sér styttri máls­með­ferð­ar­tíma í málum er varða börn og barna­fjöl­skyldur. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, með Sigríði Andersen í far­ar­broddi, lagð­ist gegn frum­varp­inu meðan allir aðrir flokkar á Alþingi sam­ein­uð­ust um breyt­ing­arnar. 

Í grein­ar­gerð sem fylgdi frum­varp­inu var sá vilji lög­gjafans árétt­aður sér­stak­lega að ávallt skyldi taka hæl­is­um­sóknir til efn­is­með­ferðar ef hæl­is­leit­endur væru í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlend­inga. 

Rauði kross­inn bendir á að í kjöl­farið mátti greina breyt­ingar á túlkun stjórn­valda á 2. mgr. 36. gr. útlend­inga­laga. Þannig komst kæru­nefnd útlend­inga­mála að þeirri nið­ur­stöðu í úrskurðum sem féllu eftir gild­is­töku breyt­ing­ar­lag­anna að ummæli í lög­skýr­ing­ar­gögnum gæfu með nægi­lega skýrum hætti til kynna að við­kvæm staða umsækj­anda skyldi hafa aukið vægi and­spænis sjón­ar­miðum sem tengj­ast meðal ann­ars skil­virkni við með­ferð umsókna og mik­il­vægis sam­vinnu Dyfl­inn­ar­sam­starfs­ins. 

Ný reglu­gerð Sigríðar Andersen virð­ist vera til­raun til að hverfa frá ofan­greindri þróun, tak­marka mögu­leika stjónr­valda til túlk­unar á sér­stökum ástæðum og draga úr vægi þess hvort hæl­is­leit­endur eru í við­kvæmri stöðu við mat á því hvort taka skuli umsóknir þeirra til með­ferðar. 

Í reglu­gerð­inni er jafn­framt tekið sér­stak­lega fram að óheim­ilt sé með öllu að „líta til athafna umsækj­anda eða afleið­inga þeirra athafna sem hafa þann til­gang að setja þrýst­ing á stjórn­völd við ákvarð­ana­töku“ og hung­ur­verk­föll nefnd sem dæmi.

Rauði kross­inn bendir á að í nýju reglu­gerð­inni eru settar fram við­mið­un­ar­reglur um hvað sé átt við með sér­stökum ástæðu sem fela í sér strang­ari kröfur en gerðar eru í lögum um útlend­inga. Í reglu­gerð­inni sé t.d. gerð krafa um „alvar­lega mis­munun í við­töku­ríki“ meðan ein­ungis er talað um „mis­munun“ í grein­ar­gerð­inni sem fylgdi útlend­inga­lög­unum. 

Þá er bent á að hingað til hafi verið lagt ein­stak­lings­bundið mat á heilsu umsækj­enda og hvaða áhrif end­ur­send­ing hafi á heilsu þeirra, óháð því hvort heil­brigð­is­kerfi í við­töku­ríki er í stakk búið til að veita við­kom­andi full­nægj­andi með­ferð. Nýja reglu­gerðin taki hins vegar fram í dæma­skyni að þeir ein­stak­lingar sem geti fallið þarna undir séu umsækj­endur sem glíma við „mikil og alvar­leg veik­indi“, auk þess sem gerð er krafa um „skyndi­legan og lífs­hættu­legan sjúk­dóm“ og að með­ferð við honum sé aðgengi­leg hér á landi en ekki í við­töku­ríki. Þá kemur fram að fyrir utan þær heilsu­fars­á­stæður sem taldar eru uppi í dæma­skyni hafi heilsu­far umsækj­anda tak­markað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efn­is­legrar með­ferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það ein­stak­lings­bundin og sér­stök að ekki verði fram hjá henni litið. 

„Rauði kross­inn telur að með setn­ingu jafn þröngra skil­yrða vegna heilsu­fars­á­stæðna séu stjórn­völd að stíga skref aftur á við í fram­kvæmd þar sem líkur eru á að heil­stætt mat á aðstæðum ein­stak­linga í leit að alþjóð­legri vernd verður gefið minna vægi,“ segir í grein­ar­gerð­inni. „Þá gerir Rauði kross­inn sér­staka athuga­semd við ákvæði reglu­gerð­ar­innar um að með­ferð telj­ist ekki óað­gengi­leg þótt greiða þurfi fyrir hana. Rétt er að hafa í huga að þeir ein­stak­lingar sem falla undir c-lið 2. mgr. 36. gr. útlend­inga­laga eru umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sem annað hvort bíða eftir svari eða hafa þegar fengið synjun á umsókn sinni. Mögu­leikar þeirra til að afla sér tekna eru veru­lega skertir og ekki hægt að gera þá kröfu að þeir greiði fyrir nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu.“ Almennt gangi efni reglu­gerð­ar­innar gegn almennri túlkun og skýr­ingu á lögum um útlend­inga, feli í sér aft­ur­för og skerð­ingu á rétt­indum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár