Sjálfstæðisflokkurinn vill skera ríkisútgjöld niður

Ísland myndi fjar­læg­ast hin Norð­ur­löndin þegar kemur að útgjöldum sem hlut­falli af þjóð­ar­fram­leiðslu. Yrði á pari við Litháen og Rússland.

Sjálfstæðisflokkurinn vill skera ríkisútgjöld niður
Vilja skera rík­is­út­gjöld niður Samkvæmt lands­fund­ar­á­lyktun vill Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn skera opin­ber útgjöld niður í 35 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Það myndi setja Ísland í hóp með löndum eins og Rúss­landi og Litháen. Mynd: Heiða Helgadóttir

Verði lands­fund­ar­á­lyktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins um sam­drátt í útgjöldum hins opin­bera að veru­leika þýddi það að Ísland yrði á pari við lönd eins og Litháen og Rússland þegar kæmi að útgjöldum sem hlut­falli af lands­fram­leiðslu. Í álykt­un­inni segir að stefnt skuli að því að „útgjöld hins opin­bera verði ekki hærri en 35% af lands­fram­leiðslu.“ Útgjöld hins opin­bera voru árið 2017 41,9 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Því þyrfti að skera niður útgjöld um tæp 16,5 pró­sent frá því sem nú er til að ná því mark­miði.  

 Ef lands­fund­ar­á­lykt­un­inni yrði fram­fylgt myndi Ísland fjar­lægj­ast Norð­ur­löndin veru­lega en árið 2015 voru sam­bæri­legar tölur þar á bil­inu 49 til 57 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Nú um stundir eru útgjöld Íslands á svip­uðum slóðum og er í Bret­landi og í Þýska­landi.

 

Öflug velferðarþjónusta kostar fjármuni

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttirFormaður Við­reisnar vill að horft verði til Norð­ur­land­anna þegar þarfir íslensks sam­fé­lags eru skil­greindar.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, bendir á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi fyrir síð­ustu kosn­ingar lofað millj­arða upp­bygg­ingu í inn­viði sam­fé­lags­ins. Það skjóti því skökku við að boða bæði skatta­lækk­anir og að draga skuli úr rík­is­út­gjöldum á sama tíma. „Ég held að það sé mun skyn­sam­legra að skil­greina það sam­fé­lag sem við viljum búa í, og skil­greina þá þjón­ustu sem þarf að veita í því sam­hengi. Ég horfi til Norð­ur­land­anna í þeim efnum og vil að við höldum úti öfl­ugu vel­ferð­ar­kerfi, sterku heil­brigð­is­kerfi og gerum vel við aldr­aða. Þetta kostar fjár­muni og þó að við í Viðreisn viljum sýna aðhald í rík­is­rekstri þá setjum við ekki kík­inn fyrir blinda augað hvað það varðar að öflug vel­ferð­ar­þjón­usta, hún kostar aukin útgjöld. Sjálf­stæð­is­menn lof­uðu 100 millj­örðum í inn­viða­upp­bygg­ingu fyrir síð­ustu kosn­ingar. Að ætla að lækka skatta á sama tíma gengur ekki upp. Mestu skiptir að sýna skyn­semi, að halda áfram að lækka skuldir rík­is­sjóðs en á sama tíma að byggja upp vel­ferð­ar­kerfið.“

„Þetta gengur augljóslega ekki upp“

Oddný Harð­ar­dóttirÞing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir ef ályktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins næði fram að ganga væri horfið frá því að hér á landi væri haldið úti vel­ferð­ar­sam­fé­lagi.

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og nefnd­ar­maður í efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis, segir að ef álykt­unin kæmi til fram­kvæmda þýddi það að horfið yrði frá því að hér á landi væri haldið uppi vel­ferð­ar­sam­fé­lagi. „Þetta þýðir bara að þau hyggj­ast skera niður vel­ferð­ar­kerfið. Stærstur hluti rík­is­út­gjalda fer í heil­brigð­is­þjón­ustu og aðra vel­ferð­ar­þjón­ustu í land­inu. Ef á að skera niður í útgjöldum verður að skera niður í vel­ferð­ar­kerf­inu, við værum að hverfa frá því að hér sé haldið uppi vel­ferð­ar­sam­fé­lagi.“

Oddný segir að ályktun sem þessi sé áhyggju­efni fyrir íslenskt sam­fé­lag. „Ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætlar í raun og veru að feta þessa slóð þá mun það skekja íslenskt sam­fé­lag og veikja það. Þetta þýðir 250 millj­arða króna nið­ur­skurður. Á sama tíma hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lofað skatta­lækk­unum en einnig inn­viðaup­bygg­ingu. Þetta gengur aug­ljós­lega ekki upp. Það vekur líka athygli að þessi stefna er í algjörri and­stöðu við það sem sam­starfs­flokk­ur­inn Vinstri græn hafa sett fram. Satt að segja get ég ekki séð hvernig efna­hags­stefna rík­is­stjórn­ar­innar og vel­ferð­ar­stefna ganga saman.“

Starfa bara eftir stefnuyfirlýsingu

Kolbeinn Ótt­ars­son ProppéÞing­maður Vinstri grænna segir að rík­is­stjórnin starfi eftir stjórn­ar­sátt­mála og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi bara sína stefnu í þessum málum.

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, vara­for­maður þing­flokks Vinstri grænna, segir að þar á bæ sé fólk full­kom­lega ósam­mála stefnu sam­starfs­flokks­ins, þegar hann er spurður um við­brögð sín við ályktun Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Þetta eru tveir ólíkir flokkar og það á ekki koma neinum á óvart að við höfum ólíka stefnu í þessum málum. Í sjálfu sér eru engin sér­stök við­brögð við þessu af minni hálfu, þetta er þeirra stefna en ég er hjart­an­lega ósam­mála henni.“

Kolbeinn bendir á að flokk­arnir þrír sem mynda rík­is­stjórn­ina hafi kom­ist að sam­komu­lagi um stefnu­á­herslur og álykt­anir lands­fundar Sjálf­stæð­is­flokks­ins breyti engu í þeim efnum. „Eftir stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni störfum við. Hver flokkur getur haft sína stefnu en í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni felst að hverju við ætlum að vinna næstu árin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár