Háskólinn tekur enga ábyrgð á aldursgreiningum flóttabarna

Vísinda­siðanefnd telur sig ekki geta fjallað um tann­greiningar á fylgdar­lausum börnum og ungmennum sem framkvæmdar eru á tann­læknadeild Háskóla Íslands þar sem enginn þjónustu­samningur er í gildi vegna rann­sóknanna.

Háskólinn eigi ekki aðild að aldursgreiningunum
Háskól­inn eigi ekki aðild að ald­urs­grein­ing­unum Röntgen­rann­sóknir á tönnum hæl­is­leit­enda fara fram við tann­lækna­deild Háskóla Íslands. Mynd: Kristinn Magnússon

Vísinda­siðanefnd Háskóla Íslands telur sig ekki hafa forsendur til að fjalla efnislega um tann­greiningarnar sem fram fara á tann­læknadeild Háskóla Íslands þar sem enginn samningur er til milli Útlendinga­stofnunar og tann­lækna­deildar Háskóla Íslands er varða aldurs­greiningar út frá tönnum. Þetta kemur fram í bréfi vísinda­siðanefndar til þriggja kvenna sem fóru fram á að nefndin tæki tann­greiningarnar til umfjöllunar.

Stundin spurðist fyrir um málið hjá Útlendinga­stofnun en í svari frá stofnuninni kemur fram að Útlendinga­stofnun hefur ekki samið við neinn um framkvæmd aldurs­greininga á tönnum heldur keypt þá þjónustu í hvert og eitt skipti, hingað til af tann­læknunum Svend Richter og Sigríði Rósu Víðis­dóttur, aðjúnkt við tann­læknadeild HÍ.

„Þangað til á allra síðustu árum var mjög fátítt að Útlendingstofnun keypti þjónustu við aldurs­greiningar. Á árunum 2012–2015 var um að ræða sex tilvik, tíu tilvik árið 2016 og 23 árið 2017. Öll aðkeypt þjónusta Útlendinga­stofnunar er nú til skoðunar með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár