Benedikt: Landsdómsmálið var „popúlismi“ og Bernie Sanders er „dæmigerður vinstri lýðskrumari“

Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, fer mik­inn í pistli sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag.

Benedikt: Landsdómsmálið var „popúlismi“ og Bernie Sanders er „dæmigerður vinstri lýðskrumari“

Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, segir að stjórn­mála­mað­ur­inn Bernie Sanders sé „dæmi­gerður vinstri lýð­skrum­ari“. Þá gagn­rýnir hann rétt­ar­höldin gegn Geir H. Haarde, segir þau vera „eitt versta dæmið um mis­beit­ingu popúl­isma í íslenskri póli­tík“ og vekur athygli á því að sam­flokks­menn Geirs hafi „nú leitt fimm af þeim sem stóðu að ákærunni á hendur honum í æðstu valda­stóla á Íslandi“. 

Þetta kemur fram í harð­orðum pistli sem Benedikt birtir í Morg­un­blað­inu í dag. Þar gerir hann popúl­isma og lýð­skrum að umtals­efni og setur í sam­hengi við stjórn­mála­á­standið á Íslandi. Bendir hann t.d. á að „nán­ast allir flokkar hafa verið á móti málum í stjórn­ar­and­stöðu en tryggja svo inn­leið­ingu þeirra þegar þeir eru komnir í rík­is­stjórn eða öfugt“. 

Benedikt segir að popúlist­anum finn­ist „ekk­ert að því að tala um að skattar skuli vera almennir á sama tíma og hann predikar að „góðar atvinnu­greinar“ eins og fjöl­miðlar eða ferða­þjón­usta borgi lægri skatta en aðrir“. Vísar hann þar lík­lega til umræðu um skattaí­viln­anir fyrir fjöl­miðla og þess að núver­andi rík­is­stjórn hefur fallið frá áformum fyrri rík­is­stjórnar og hans sjálfs um að færa ferða­þjón­ustu upp í efra þrep virð­is­auka­skatts­ins.

Þá segir Benedikt Lands­dóms­málið vera dæmi um popúl­isma. Sem kunn­ugt er var Geir H. Haarde fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra dæmdur í Lands­dómi árið 2012 fyrir að hafa sýnt stór­kost­legt gáleysi í störfum sínum sem for­sæt­is­ráð­herra í aðdrag­anda banka­hruns­ins 2008.

Taldi rétt­ur­inn að með aðgerða­leysi sínu hefði Geir ekki aðeins brotið gegn form­reglu í stjórn­ar­skrá heldur bein­línis van­rækt að marka póli­tíska stefnu til að takast á við þann efna­hags­vanda sem honum hlaut að vera ljós strax í febr­úar 2008 og þannig draga úr því tjóni sem varð við hrun bank­anna.

Nýlega úrskurð­aði Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu um að engin mann­rétt­indi hefðu verið brotin í Lands­dóms­mál­inu. Fram kom í dómi MDE að ekk­ert benti til þess að dóm­arar við Landsdóm hefðu verið hlut­drægir í störfum sínum, sætt óeðli­legum þrýst­ingi eða haft óeðli­leg tengsl við stjórn­mála­menn. Þá hefði skipun dóm­stóls­ins ekki veirð á skjön við kröfur Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um sjálf­stæðan og óvil­hallan dóm­stól. 

Benedikt gerir banda­ríska for­seta­fram­bjóð­and­ann Bernie Sanders að umtals­efni og segir hann eiga það sam­eig­in­legt með Donald Trump að vera lýð­skrum­ari. „Þver­stæðan er sú að stundum er mál­pípan hluti af hinum útvöldu, hópnum sem hún talar gegn. Menn sem segj­ast vera rödd guðs eru yfir­leitt taldir galnir, en þeir sem segj­ast vera rödd fólks­ins, eins og Trump, tala oft með svip­uðum hætti. Bernie Sanders og fylg­is­mönnum hans fynd­ist eflaust afleitt að vera líkt við Trump, en Sanders er dæmi­gerður vinstri lýð­skrum­ari,“ skrifar Benedikt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár