Kallaði sig „niðurskurðarkónginn“: Ánægður með að hafa lagt niður safn og segir borgina kaupa of dýr hrísgrjón

Kjartan Magnússon, borgar­fulltrúi til margra ára og fram­bjóðandi í leiðtoga­prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík, spurði hvort ef til vill mætti „leggja niður bóka­söfnin“ og sagði embættis­menn fyrst og fremst hugsa um sjálfa sig.

Kjartan Magnússon
Kjartan Magn­ús­son Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins kallar sig „nið­ur­skurð­ar­kóng­inn“. Mynd: Pressphotos.biz

Kjartan Magnússon, borgar­fulltrúi til margra ára og fram­bjóðandi í leiðtoga­prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík, hvatti til niður­skurðar í borgar­kerfinu á fram­bjóðenda­fundi Heim­dallar sem fram fór í Valhöll miðvikudaginn 25. janúar.

Þegar hann kynnti framboð sitt sagðist hann hafa verið „niður­skurðar­kóngurinn“ eftir hrun og náð að skera niður um 2 til 3 milljarða á sviði mennta-, íþrótta- og tómstunda­mála. Hann sagði niður­skurðinn eflaust hafa bitnað á fundar­gestum, sem voru á grunn­skólaaldri á þeim tíma, en fullyrti um leið að þjónusta borgarinnar hefði ekkert skerst. 

„Ég hef reynslu af því að taka kerfið í gegn frá því í hruninu. Þá var ég formaður mennta­ráðs sem sá um rekstur grunn­skólanna og íþrótta- og tómstunda­ráðs og var ef svo má segja niður­skurðar­kóngurinn. Þetta var eftir hrun og við urðum að skera niður, hvort sem okkur líkaði betur eða verr. Það var mest skorið niður á mínum sviðum og þá innleiddum við ákveðna aðferða­fræði sem ég tel að hafi gefist mjög vel,“ sagði Kjartan í ræðu sinni.

„Ég lagði niður eitt safn“

„Við náðum að skera niður um 2 til 3 milljarða í þessu kerfi sem sumir héldu að væri ekki hægt. Þessi niður­skurður hefur örugglega bitnað á flestum hér inni á sínum tíma, enda náði hann til allra skóla og íþrótta­félaga í Reykjavík, en þetta tókst vel og ég stend á því fastar en fótum að þjónustan skertist ekki. Semsagt, við veittum ekki verri þjónustu þrátt fyrir að við næðum að skera niður.“

Í pallborðs­umræðum sagðist Kjartan hafa verið formaður menningar­mála­nefndar í eitt ár og tekist að leggja niður safn. „Ég lagði niður eitt safn. Þá var sagt við mig að það yrði allt vitlaust en það kvartaði enginn,“ sagði hann.

„Við þurfum líka að spyrja okkur að því: Ætlum við að halda úti allri þjónustu? Fólk er hætt að leigja sér bækur í jafn miklum mæli og það gerði. Ættum við að skoða það að leggja niður bóka­söfnin eða sameina almennings­bókasöfnin í hverju hverfi skóla­bókasafninu í hverfinu?“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2018

FréttirKosningar 2018

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðju­samstarfi en myndaði atkvæða­blokk með Sjálfstæðis­flokknum

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokksins, sætir harðri gagnrýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálfstæðis­flokknum og Miðflokknum af praktískum ástæðum. „Framkvæmdar­stjóri borgar­stjórnar­flokks Sjálfstæðis­flokksins sendi fyrir hönd allrar stjórnar­andstöðunnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, í dag.
ÚttektKosningar 2018

Laun íslenskra bæjar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæjar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borgar­stjóra New York og London. Báðir bæjar­stjórar eru á hærri launum en forsætis­ráðherra. Laun bæjar­stjóra Kópavogs hækkuðu um tæp 58% á kjör­tímabilinu og laun bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar um 36%. „Allt óréttlæti mun kalla á meiri óánægju,“ segir formaður stéttar­félagsins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár