Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins vill ekki að „duglega fólkið“ haldi uppi sjúklingum sem keppast við að vera veikir

Viðar Guðjohnsen, sem býður sig fram í oddvita­sæti Sjálfstæðis­flokksins fyrir borgar­stjórnar­kosningarnar, vill ekki borga fyrir „klessu­feitt fólk“ eða „annarra manna börn“ og telur að veikir fíkniefna­neytendur eigi að mæta örlögum sínum óstuddir.

Viðar Guðjohnsen
Viðar Guðjohn­sen Vill að sjúkir fíkni­efna­neyt­endur mæti örlögum sínum óstuddir. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

„Vitið þið ekki að það er mann­fjölgunar­vandamál hérna?“ segir Viðar Guðjohnsen, fram­bjóðandi í oddvita­sæti Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík fyrir borgar­stjórnar­kosningarnar, sem vill að hætt verði að styðja sjúka fíkniefna­notendur, sérstak­lega þá sem eru erlendir að uppruna. Hann vill skera niður í félags­þjónustu Reykja­víkurborgar með því að hætta þjónustu við þá sem verst eru haldnir.

Viðar, sem er einn af fimm fram­bjóðendum sem gefa kost á sér í leiðtoga­prófkjöri Sjálstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgar­stjórnar­kosningar, kynnti skoðanir sínar í þættinum Harmageddon á útvarps­stöðinni X-inu 977 fyrr í dag. 

Ekki eigi að halda lífi í fólki

Viðar segir að útigangs­menn og fíkniefna­neytendur eigi ekki að fá neina hjálp. Spurður hvað eigi að gera fyrir þá segir hann: „Ekkert. Þeir ákváðu sjálfir að vilja tortíma sjálfum sér. Á ég allt í einu að taka þátt í því að vekja þá til lífsins? Vitið þið ekki að það er mann­fjölgunar­vandamál hérna? Það vantar ekki að halda lífi í fólki sem vill ekki lifa.“

Þekkt er að tengsl eru milli geðsjúk­dóma og misnotkun vímuefna. Þannig er því gjarnan haldið fram að án sálrænna vandamála sé ólíklegt að misnotkun vímuefna eigi sér stað. 

Reykja­víkurborg rekur gistiskýlið sem er neyðar­nætur­athvarf fyrir heimilis­lausa karlmenn með lögheimili í Reykjavík. „Öðrum er þó ekki vísað frá nema hvert rúm sé skipað,“ segir á vef borgarinnar. 

„Þeir vilja gera alla að aumingjum.“

Viðar vill úthýsa erlendum mönnum í fíkni­vanda sem leita ásjár. „Þessir jafnaðar­menn, þessi illmenni, vil ég nú oft kalla, vegna þess að þeir eru svo hugsunar­lausir, þeir vilja gera alla að aumingjum. Og það á að halda utan um alla. Og það á að vera svo góður við alla og helst á að ná í sjúklinga erlendis frá. Og vitum það, hvernig þetta er í skýlinu hérna, niðri í bæ, að það er orðið allt fullt af útlendingum. Rónum frá útlöndum.“ 

Duglegir haldi ekki uppi sjúkum

Viðar heldur því fram að útlendir útigangs­menn hugsi sér gott til glóðarinnar: „Ryksugum úr þeim sem er duglegur!“ segir Viðar. 

Viðar hefur áður látið til sín taka í starfi Sjálfstæðis­flokksins. Hann segist vera harður hægri­maður og telur að sumir þeirra, sem eru veikir, keppist við það og eigi að mæta örlögum sínum óstuddir. 

„Ég myndi láta þá sem eru fyrir, og eru alvöru veikir, ekki þá sem eru að keppast við að vera veikir, ég myndi búa til hvata­kerfi, að það yrði tekið meiri ábyrgð á því hvað þú setur upp í munninn á þér. Hvað þú dópar. Vegna þess að þetta er komið út í óáran, að láta einhvern annan, sem er duglegur, sem vinnur, píparann eða smiðinn, hann á allt í einu að fara að halda uppi einhverju fólki.“

Þá lýsir hann því að feitir eigi að taka ábyrgð á þeim heilbrigðis­vandamálum sem þeir mæta. „Einstaklingurinn á að taka ábyrgð. Ekki að búa til einhverjar stofnanir og einhver kerfi og fundarhöld um það hvernig á að finna einhver lyf til að leysa undirhöku­vandamál eða of breiðar mjaðmir eða klessu­feitt fólk.“ 

Vill hækka laun karla í skólum

Þá er Viðar andsnúinn því að skattfé renni til menntunar ungs fólks. „Þetta liggur í skólum. Og hver á að borga skóla­gjöldin? Jú, skatt­borgarinn! Sá duglegi.“

Þá telur hann undarlegt að 30 prósent drengja geti ekki lesið sér til gagns og tengir það við að 83 prósent kennara í grunn­skólum séu konur. Hann vill hækka laun karlmanna í skólunum. „Við verðum að bjóða í þá. Þeir eru greini­lega eftirsótt vara í grunn­skóla. Því við getum ekki alltaf látið konurnar ráða yfir öllu. Þetta er orðið vandamál. Konurnar, femínisminn, hann vill búa til stofnanir sem ala upp börnin. Ég segi, ef þið getið ekki haft efni á því að eiga börn, eða hafið ekki tíma eða metnað, þá eigið þið bara ekkert að eiga börn. Því ég vil ekki borga fyrir annarra manna börn.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár