Ragnhildur kærði Jóhann Óla og Stefán fyrir frelsissviptingu

Ragn­hildur Ágústs­dóttir, fyrr­ver­andi for­stjóri Tals, lýsir „kyn­bundnu ofbeldi“ gegn sér og „frels­is­svipt­ingu“ í deilum um síma­fyr­ir­tækið. Kærði málið til lög­regl­unnar sem lét það niður falla.

Ragnhildur kærði Jóhann Óla og Stefán fyrir frelsissviptingu
Segir Hermann hafa verið vit­orðs­mann Ragn­hildur Ágústs­dóttir lýsir því í löngu máli hvernig hún var beitt kyn­bundnu ofbeldi og frels­is­svipt­ingu af tveimur mönnum þegar hún var for­stjóri Tals árið 2009. Ragn­hildur tengir opin­berun sína við Metoo-her­ferð­ina og segir Hermann Jónasson hafa verið vit­orðs­mann að því hvernig henni var gert að hætta hjá Tali með lík­am­legum og and­legum þrýst­ingi.

Fyrr­ver­andi for­stjóri Tals, Ragn­hildur Ágústs­dóttir, kærði kaup­sýslu­mann­inn Jóhann Óla Guð­munds­son og hæsta­rétt­ar­lög­mann­inn Stefán Geir Þórisson fyrir „frels­is­svipt­ing­u“, sem hún telur vera dæmi um „kyn­bundið ofbeldi“, árið 2009. Ragn­hildur segir þessa sögu sína í pistli á Kjarn­anum og tengir grein­ina við Metoo-her­ferð­ina. Sagan teng­ist deilum um yfir­ráð yfir fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu í lok árs árið 2008 þar sem hlut­hafar þess tók­ust á, meðal ann­ars meiri­hluta­eig­end­urnir í Teymi og Jóhann Óli Guð­munds­son sem var stofn­andi Tals og oft er kenndur við Securitas.

Ragn­hildur nafn­greinir ekki þá Jóhann Óla og Stefán Geir í pistl­inum, en áður hefur verið greint frá kæru sem hún lagði fram á hendur þeim hjá lög­regl­unni. Ragn­hildur lýsir því hvernig henni var gert að skrifa undir samn­ing um starfs­lok sín hjá Tali, eftir að hafa gegnt for­stjóra­starf­inu um nokk­urra mán­aða skeið í byrjun árs 2009, þar sem hluti hlut­haf­anna vildi að Hermann Jónasson tæki aftur við for­stjóra­starf­inu en hún hafði tekið við því af honum í lok des­em­ber 2008. 

 „Þú hefur ekki hug­mynd um hvað þú ert búin að koma þér útí stelpa“

Ýtt niður og skipað að skrifa undir

Lýsing Ragn­hildar á því sem hún kærði sem frels­is­svipt­ingu er svohljóð­andi en hún hafði þá verið kölluð á fund með Jóhanni Óla og Stefáni Geir: „Ég var ekki fyrr komin inn í her­bergið en að hurð­inni var lokað á eftir mér og lagt fyrir mig plagg sem mér var gert að lesa. Ég sett­ist tor­tryggin niður og las fyrstu lín­urnar en spurði svo hvað væri eig­in­lega um að vera. Þá tók hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn um­búða­laust til máls og greindi frá því að um væri að ræða brott­vikn­ingu úr starfi þar sem ráðn­ing mín í starf for­stjóra hafi verið ólög­mæt og að ég þurfi að kvitta undir plagg­ið. Ég tók upp far­sím­ann til að hringja í lög­fræð­ing­inn minn sem ég hafði ráð­fært mig við varð­andi mína stöðu nokkrum vikum áður. Ég náði sam­bandi við skipti­borð­ið, kynnti mig og bað um sam­band og skömmu síðar svar­aði lög­fræð­ing­ur­inn með nafni en þá slitn­aði sam­band­ið. Ég hringdi strax aftur en heyrði þá rödd svara „Lokað hefur verið fyrir þetta síma­núm­er“. Vit­andi hvernig fjar­skipta­geir­inn virk­aði, leit ég van­trúuð á þá félaga sem enn voru stand­andi og spurði: „Létuð þið loka fyrir síma­núm­erið mitt?“ Þegar þeir svör­uðu ekki stóð ég upp og sagði „Ég ætla að fara inn á skrif­stofu og hringja í lög­fræð­ing­inn minn“. Þá steig hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur­inn á­kveðið fyrir dyrnar og í sömu andrá snéri full­trúi minni­hluta­eig­anda sér að mér og ýtti mér ákveðið niður í sætið og sagði: „Þú ferð ekki út úr þessu her­bergi fyrr en þú ert búin að skrifa undir þetta plagg“.“

Ekkert kom út úr mál­inu hjá lög­regl­unni segir Ragn­hildur í pistl­inum og var kærunni vísað frá á end­anum. 

 

Ríkisforstjóri hluti af sögunni

Ragn­hildur segir í pistl­inum að Hermann Jónasson, sem ráð­inn var í starf for­stjóra Íbúða­lána­sjóðs árið 2015, hafi komið að starfs­lokum hennar hjá Tali. Hún nafn­greinir Hermann ekki í pistl­inum en ljóst er að hún er að vísa til Hermanns. Hún segir að á meðan henni hafi verið haldið inni í her­berg­inu til að skrifa undir starfs­lok sín hafi Hermann boðað til starfs­manna­fundar: „Ég frétti síðar hjá nokkrum starfs­mönnum að menn­irnir tveir sem ég var að glíma við inni í fund­ar­her­berg­inu voru ekki einir að verki. Meðan mér var haldið inni í fund­ar­her­bergi hafði fyrrum for­stjóri valsað inn í fyr­ir­tækið og boðað til starfs­manna­fundar þar sem hann tjáði starfs­fólk­inu að ég hefði látið af störfum og að hann væri aftur tek­inn við for­stjóra­taumun­um. Því miður sá ég hann aldrei þennan til­tekna dag og því gat ég ekki lagt fram kæru á hendur honum eins og hinum tveimur þó ég sé ekki í vafa um að hann hafi verið vit­orðs­maður í þess­ari fram­kvæmd allri.“

Varð að tjá sigRagn­hildur segir í pistl­inum að hún hafi orðið að tjá sig um reynslu og tengir sögu sína við Metoo-her­ferð­ina.

Tengir söguna við starfslok Hermanns í Arion

Ragn­hildur nefnir í lok pistils­ins að Hermann hafi gegnt for­stjóra­starf­inu um í eitt og hálft ár eftir þetta og að hann hafi svo farið í banka­geir­ann og verið vændur um kyn­ferð­is­lega áreitni sem leiddi til þess að hann missti starf sitt. „Til að gera langa sögu stutta þá sat for­stjór­inn sem fast­ast í sínum stól næstu 18 mán­uð­ina eða svo. Þegar hann lét af störfum fór hann aftur í banka­geir­ann og vann þar sem stjórn­andi um nokk­urra mán­aða skeið þar til hann var settur í leyfi eftir að upp komu ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni gagn­vart nokkrum kven­kyns starfs­mönnum bank­ans. Smá­vægi­leg umfjöllun varð um það mál í fjöl­miðlum en málið náði aldrei neinum hæð­um. Um margra ára skeið vildi ég sem minnst af honum og félögum hans vita.“ 

 Segir tíma þagnarinnar liðinn

Ragn­hildur segir í sam­tali við Stundina að hún vilji ekki tjá sig frekar um málið umfram það sem kemur fram í pistl­inum á Kjarn­anum.

Í pistl­inum segir hún að hafi orðið að opna sig um reynslu sína:  „Ég hef álasað sjálfa mig fyrir að hafa þagað yfir mál­inu. Að hafa ekki sagt frá og þar með lagt mitt á vog­ar­skál­arnar til að forða því að menn af þessu tagi kæmust í áhrifa­stöð­ur. Að hafa með þögn­inni stefnt öðrum konum í hættu. En ekki leng­ur. Tím­inn þagn­ar­innar er lið­inn. Við verð­um, sem þjóð­fé­lag, að rísa upp gegn kúltúr sem lætur ein­stak­linga halda að þeir geti traðkað yfir annað fólk á skítugum skón­um. Við verð­um, sem þjóð, að krefj­ast þess að virð­ing sé borin fyrir öllum og standa vörð um þá hug­sjón.“

Hermann Jónasson var ekki við­lát­inn þegar Stundin hafði sam­band við Íbúða­lána­sjóð til að spyrja hann um málið þar sem hann var á fundi. Stundin náði heldur ekki sam­band við Stefán Geir Þórisson í gengum skipti­borð lög­manns­stof­unnar sem hann vinnur hjá.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár