Skrásetja hatur gegn hinsegin fólki á Íslandi

Ugla og Svanhvít hafa safnað saman hat­urs­fullum ummælum gegn hinsegin fólki af kommenta­kerfum og sam­fé­lags­miðlum síð­ustu tvö ár, en þau segja að þau séu algeng­ari en flesta grunar. Af eigin raun segja þau að fólkið sem lætur þessi hat­urs­fullu orð falla sé mest­megnis eins­leitur hópur af eldri karl­mönnum sem eru virkir í kommenta­kerfum og lýsa yfir andúð sinni gegn mörgum mis­mun­andi minni­hluta­hópum.

Skrásetja hatur gegn hinsegin fólki á Íslandi

„Mikið djöf­ull er að sjá þetta! Ein­hverjir íslenskir hommar í sleik og láta líta svo út að það séum við hvítu ljótu kristnu kall­arnir sem séu svo vondir við þá og allt það vælið ... meðan stað­reyndin sem öllum er ljós nema þeim sem eru með rétt­trún­að­ar­vírus­inn troð­fastan í rass­gat­inu að það er ISLAM sem strá­fellir homma og hatar þá út af líf­inu.“

Þessi færsla Ragnars Thor­is­sonar er ein af 150 færslum sem er að finna á Tumblr-vef­síð­unni „Fólk með for­dóma“, sem hefur verið starf­ræk í tvö ár. Líkt og Hildur Lilli­endahl Vigg­ós­dóttir safn­aði kven­hat­ursum­mælum á síðu sinni, „Karlar sem hata konur“, safna þau Svanhvít Ada Björns­dóttir og Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir hat­urs­fullum ummælum gegn hinsegin fólki sem birt­ast á sam­fé­lags­miðlum og kommenta­kerfum. Þau segja slíka orð­ræðu vera stór­hættu­lega gagn­vart þessum við­kvæma minni­hluta­hópi.

Umræða um hat­urs­orð­ræðu hefur færst í auk­ana á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár