Borgin segir fjárframlög vegna NPA-samninga duga skammt

Fjár­mála­skrif­stofa Reykja­vík­ur­borgar gerir athuga­semdir við fjár­laga­frum­varp frá­far­andi stjórnar.

Borgin segir fjárframlög vegna NPA-samninga duga skammt

Málefnum fatl­aðs fólks hefur verið haldið í fjársvelti um ára­bil, bæði hvað varðar launa­kostnað og aðstöðu. Í fjár­mála­á­ætlun frá­far­andi rík­is­stjórnar er gert ráð fyrir að þjón­ustu­kröfur og útgjöld sveit­ar­fé­laga vegna mála­flokks­ins auk­ist, án þess að því sé svarað hvort og hvernig megi mæta kostn­að­ar­auk­anum, meðal ann­ars í tengslum við full­gild­ingu á samn­ingi Sam­ein­uðu Þjóðanna um rétt­indi fatl­aðs fólks og lög­fest­ingu not­enda­stýrðrar per­sónu­legrar aðstoðar. 

Þetta er álit fjár­mála­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar og kemur fram í umsögn hennar um fjár­laga­frum­varp frá­far­andi rík­is­stjórnar. Kallar borgin eftir því að þjón­usta við fatlað fólk verði full­fjár­mögnuð í fjár­lögum í sam­ræmi við þær þjón­ustu­kröfur sem ríkið hefur sett og raun­veru­legan kostnað við að veita þjón­ust­una.

Borgin telur að ríkið ætti að koma að fjár­mögnun NPA-samn­inga af miklu meiri krafti en gert er ráð fyrir í fjár­laga­frum­varp­inu, en þar er 70 milljón króna fram­lag helgað verk­efn­inu.

Í umsögn fjár­mála­skrif­stof­unnar er bent á árið 2017 sé gert ráð fyrir 13 samn­ingum og að greiðslur til NPA not­enda nemi 292 mkr. „Mikill þrýst­ingur er af hálfu vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á sveit­ar­fé­lögin að fjölga þessum samn­ingum en á hinum Norð­ur­lönd­unum er staðan sú að menn eru að hverfa frá þessu þjón­ustu­formi vegna þess að kostn­að­ur­inn hefur farið úr böndum. Þjón­ustu­formið felur í sér aukið þjón­ustu­stig frá því sem verið hefur,“ segir í umsögn­inni. 

„Framlög í fjár­laga­frum­varpi 2018 eru í takt við fram­lög síð­ustu ára, en Reykja­vík­ur­borg hefur bent á að ríkið verði að koma að fjár­mögnun NPA samn­inga með miklu sterk­ari hætti. Sú aukn­ing á þjón­ustu­stigi sem NPA samn­ingar fela í sér kalla á auk­inn kostnað fyrir sveit­ar­fé­lögin og hefur lög­fest­ing forms­ins þannig bein áhrif á útgjöld sveit­ar­fé­laga.“

Utangarðsfólk úr öðrum sveitarfélögum
þarf að leita ásjár Reykjavíkurborgar

Borgin gerir ýmsar athuga­semdir við fjár­laga­frum­varp frá­far­andi rík­is­stjórnar. Eitt atrið­anna er það að rík­is­sjóður veiti borg­inni ekki meiri stuðn­ing en raun ber vitni í þjón­ustu við utan­garðs­fólk.

Bent er á að gjald­frjáls þjón­usta Reykja­vík­ur­borgar við heim­il­is­laust fólk nýt­ist ein­stak­lingum úr öðrum sveit­ar­fé­lögum þar sem mál­unum er ekki sinnt. 

„Verið er að vinna að samn­ingum hvað varðar þjón­ustu neyð­ar­gisti­skýla. Ríkið hefur mjög tak­markað komið að þeirri þjón­ustu sem borgin veitir þessum hópi ein­stak­linga en þó með tíma­bund­inni aðkomu að rekstri eins heim­ilis. Árlegur kostn­aður Reykja­vík­ur­borgar er um 380 mkr.,“ segir í umsögn­inni. 

Hækkun olíugjalds bitnar á 
rekstri almenningssamgangna

Reykja­vík­ur­borg hefur sinnt heima­hjúkrun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síðan 2009. Fram kemur í umsögn fjár­mála­skrif­stof­unnar að frá 2013 til 2016 hafi útgjöld vegna heima­hjúkr­unar hækkað um 25 pró­sent en á sama tíma­bili hafi greiðslur rík­is­ins fyrir þjón­ust­una aðeins hækkað um 18%. Nauð­syn­legt sé að ríkið greiði fyrir þjón­ustu heima­hjúkr­unar í sam­ræmi við raun­kostnað.

Í umsögn­inni er bent sér­stak­lega á að fyr­ir­huguð hækkun olíu­gjalds muni þyngja rekstur Strætó BS veru­lega á næstu árum. Fyr­ir­tæk­inu verði erfitt að standa undir þessum aukna kostn­aði nema til komi sér­stakur stuðn­ingur rík­is­ins, svo sem með end­ur­greiðslu olíu­gjalds.

„Skorað er á ríki að falla frá fyr­ir­hug­aðri hækkun olíu­gjalds þar sem hækk­unin mun auka kostnað við rekstur almenn­ings­sam­gangna veru­lega eða finna leiðir til að þessi aðgerð leiði ekki til skerð­ingar á þjón­ustu við íbúa,“ segir í umsögn fjár­mála­skrif­stof­unnar.

250 milljóna tekjutap á ári vegna „Fyrstu fasteignar“

Þá er vikið að því tapi sem sveit­ar­fé­lög verða fyrir vegna skatt­frjálsrar ráð­stöf­unar sér­eign­ar­sparn­aðar, og er þá einkum vísað til laga um stuðn­ing til kaupa á fyrstu íbúð sem voru sam­þykkt í tíð rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins og kynnt undir yfir­skrift­inni „Fyrsta fast­eign“.

Lögin fela í sér að fólk getur tekið út upp­safn­aðan sér­eign­ar­sparnað eða nýtt sér­eign­ar­sparnað til að greiða inn á lán, sem tryggt er með veði í fyrstu íbúð, yfir tíu ára tíma­bili. Vegna lag­anna gerir Reykja­vík­ur­borg ráð fyrir að verða af útsvars­tekjum sem nema í kringum 250 til 300 millj­ónum króna ári. 

Gildandi úrræði um nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til lækk­unar höf­uð­stóls fast­eigna­lána hefur haft umtals­verð áhrif á útsvars­tekjur Reykja­vík­ur­borgar. „Samkvæmt mati Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga dags. 18.8.2016 námu tap­aðar brúttó útsvars­tekjur Reykja­vík­ur­borgar vegna ráð­stöf­unar iðgjalds sér­eign­ar­sparn­aðar til lækk­unar hús­næð­is­lána u.þ.b. 638 m.kr. vegna tekju­árs­ins 2015,“ segir í umsögn­inni. „Ætla má að útsvars­tekju­tap borg­ar­innar vegna skatt­frjálsrar greiðslu sér­eign­ar­sparn­aðar inn á fast­eigna­lán nemi þannig alls u.þ.b. 3,1 makr vegna tíma­bils­ins 1. júlí 2014 til 30. júní 2019.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár